Áform um fjögurra hæða byggingu við Strandveg

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að kynna á vinnslustigi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna fasteignarinnar við Strandveg 63. Það er Jóhann Halldórsson fyrir hönd félagsins Island rent KJT ehf. sem sækir um breytinguna. Samkvæmt erindinu felst hún meðal annars í því að heimilt verði að hækka bygginguna úr tveimur hæðum í fjórar. Jafnframt […]
Vopnaður maður handtekinn í aðgerð sérsveitar

Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru í aðgerðir við íbúðarhúsnæði á Fífilgötu í Vestmannaeyjum í gærkvöld þar sem maður vopnaður hnífi var handtekinn. Maðurinn var í kjölfarið fluttur til Reykjavíkur. Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum, staðfesti þetta í skriflegu svari við fyrirspurn Eyjafrétta í morgun. Haft er eftir Arndísi Báru Ingimarsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, […]
Bilun í Álfsnesinu tefur dýpkun

Bilun kom upp í dýpkunarskipinu Álfsnesinu í morgun sem hefur áhrif á áframhaldandi vinnu við Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Tjakkur í Álfsnesinu sem stýrir einum af átta losunarhlerum skipsins brotnaði í morgun,“ segir Pétur. Til að hægt sé að gera við bilunina þarf aðstoð kafara. „Það […]
Eyjakonur mæta með bakið upp við vegg

Kvennalið ÍBV í handbolta sækir Val heim í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í dag. Leikurinn fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda og hefst klukkan 17:00. Staðan í einvíginu er 2–0 fyrir Val sem er því einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. Eyjakonur þurfa á sigri að halda til að halda einvíginu á lífi og knýja […]
Bókunarkerfið enn niðri – Herjólfur birtir siglingaáætlun laugardagsins

Bókunarkerfi Herjólfs er enn niðri og því ekki hægt að bóka ferðir eða gera breytingar á bókunum. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þrátt fyrir það hefur félagið birt siglingaáætlun laugardagsins svo farþegar geti skipulagt ferðir sínar. Á laugardag 9. maí verður siglt frá Vestmannaeyjum kl. 09:30, 12:00, 19:30 og 21:30. Ferðirnar […]
Hvatningarverðlaun afhent og styrkir veittir til skólaþróunar

Metnaður, nýsköpun og jákvætt skólastarf voru í forgrunni þegar fræðsluráð Vestmannaeyja afhenti hvatningarverðlaun sín og úthlutaði styrkjum úr Þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla í Einarsstofu á miðvikudag. Fjöldi verkefna sem miða að auknu útinámi, skapandi kennslu og bættri námsupplifun barna hlaut stuðning að þessu sinni. Frá þessu var greint á vef bæjaryfirvalda í dag. Fræðsluráð […]
Vegagerðin með opinn fund um Landeyjahöfn

Vegagerðin mun halda opinn fund í Vestmannaeyjum 2. júní næstkomandi þar sem fjallað verður um Landeyjahöfn, stöðuna í vetur og áskoranir við dýpkun hafnarinnar. Frá þessu er greint í frétt á vef Vegagerðarinnar. Þar segir jafnframt að farið verði yfir hvernig dýpkun hefur gengið undanfarin ár í samanburði við nýliðin vetur. Þá verðar kynntar frumniðurstöður […]
Víkin heimsótti Vinnslustöðina

Börnin á Víkinni, 5 ára deild, heimsóttu Vinnslustöðina í vikunni og vakti heimsóknin mikla lukku hjá hópnum. „Þau voru mjög spennt að koma og fannst sérstaklega gaman að klæðast öllum hlífðarfatnaðinum frá toppi til táar,“ segir Helena Björk Þorsteinsdóttir í samtali við vefsíðu Vinnslustöðvarinnar, en hún tók á móti hópnum. „Sum þeirra voru svo ánægð […]
Herjólfur: Áætlun föstudagsins gefin út

Enn liggur bókunarkerfið Herjólfs niðri og ekki hægt að bóka né breyta, segir í tilkynningu frá skipafélaginu. Þá segir: „En við viljum þó upplýsa um siglingaáætlun morgundagsins.” Föstudagur 8.maí Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 08:00, 10:00, 19:30, 21:30. (Áður ferðir kl. 07:00, 09:30, 17:00 og 22:00). Brottför frá Landeyjahöfn kl. 09:00, 11:00, 20:45, 23:15 (Áður ferðir […]
ÍBV biðst afsökunar á ummælum í garð Hafdísar

Handknattleiksdeild ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem deildin fordæmir mismunun og biðst afsökunar á ummælum sem stuðningsmaður ÍBV lét falla í garð Hafdísar Renötudóttur í öðrum leik úrslitaeinvígis Olís deildar kvenna. Í yfirlýsingunni kemur fram að um hafi verið að ræða einn einstakling en ekki stuðningsmannasveit eða stuðningsmenn ÍBV almennt. Þá segir að […]
Bókunarkerfi Herjólfs niðri eftir eldsvoða í Amsterdam

Óheppnin heldur áfram að elta Herjólf en bókunarkerfi félagsins hefur legið niðri stóran hluta dagsins vegna eldsvoða í gagnaveri í Amsterdam þar sem kerfið er hýst. Frá þessu er greint í tilkynningu á samfélagsmiðlum Herjólfs þar sem fram kemur að kviknað hafi í gagnaverinu í morgun og að öll fjarskipti við svæðið liggi niðri. „Ástæðan […]
Dómkórinn heldur tónleika í Eyjum

Dómkórinn í Reykjavík sækir Vestmannaeyjar heim og heldur tónleika í safnaðarheimili Landakirkju laugardaginn 9. maí kl. 17:00. Á efnisskrá er tónlist af ýmsum toga, íslensk og erlend, allt frá Palestrina og Grieg, til Hjálmars H. Ragnarssonar og Oddgeirs Kristjánssonar. Kitty Kovács leikur með á píanó en stjórnandi kórsins er Eyjamaðurinn Matthías Harðarson dómorganisti. Aðgangur er […]
Herjólfur III enn án haffærniskírteinis

Prufusigling Herjólfs III í gær gekk mjög vel að sögn G. Péturs Matthíassonar, forstöðumanns samskiptadeildar Vegagerðarinnar, en enn á eftir að klára ákveðna þætti áður en nýtt haffærniskírteini verður gefið út. „Siglingin í gær gekk mjög vel og verið er að leggja lokahönd á undirbúninginn,“ segir Pétur í samtali við Eyjafréttir. Haffærniskírteini skipsins hefur þó […]
Og svo allar hinar

Það er sem betur fer eitt af lyndiseinkennum okkar Íslendinga að hafa sterka réttlætiskennd. Setningin „Gjör rétt, þol ei órétt“ hafa verið einkunnarorð mikilsmetinna stjórnmálamanna. Orðin meitla það: að vera heiðarlegur og sanngjarn í eigin verkum, en standa jafnframt fast á móti ef brotið er á manni eða þjóðinni. Það þykir fréttnæmt ef upp kemst […]
Umsókn um 120 herbergja hótel í Hásteinsgryfju fer til bæjarráðs

Erindi um mögulega uppbyggingu 120 herbergja hótels í Hásteinsgryfju var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs Vestmannaeyja. Það er Þröstur B. Johnsen sem sækir um að fá landi úthlutað fyrir uppbyggingu hótels á svæðinu. Með erindinu fylgdu myndir af mögulegu útliti hótelsins auk afrits af deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein þar sem gert er ráð […]
Strandveiðarnar komnar á fullt

Strandveiðitímabilið hófst í gær og var töluverð hreyfing í höfninni í Vestmannaeyjum í dag þegar bátarnir komu að landi með afla sinn eftir upphaf vertíðarinnar. Sjómenn hafa beðið eftir byrjun strandveiðanna með eftirvæntingu og nýttu margir fyrsta færið til að sækja sjó. Á bryggjunni í Eyjum var líf og fjör þegar bátarnir lönduðu afla sínum […]
Eigum við að láta blekkja okkur? Tækifærin fyrir landsbyggðirnar í Evrópusamstarfi

Þegar rætt er um Evrópusambandið er oft talað eins og hagsmunir landsbyggðarinnar og full aðild fari ekki saman. Fólki er sagt að byggðirnar muni tapa, landbúnaður veikjast og sjávarútvegurinn lenda í höndum annarra þjóða. Þetta er endurtekið svo oft af fólki sem er á launum við að sá tortryggni og ótta að það er skiljanlegt […]
Skýr framtíðarsýn í menningarmálum

Ný menningarstefna Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2026–2031 var kynnt 1. maí sl. og dregur fram hversu mikilvæg menning er fyrir lífsgæði samfélagsins. Stefnan er afrakstur samráðs við íbúa á öllum aldri, hagaðila og stofnanir og ber þess skýr merki að hlustað hafi verið á ólíkar raddir samfélagsins. Sú vinna skilar sér í vel mótaðri stefnu með […]
Mukka með nýtt lag – „So Close“

Mukka munu gefa út nýju smáskífuna „So Close“ þann 16. maí næstkomandi. Lagið er fyrsta útgáfan af væntanlegri plötu sveitarinnar, Study Life Nr. 5, sem kemur út árið 2027. Í tilefni útgáfunnar heldur sveitin forhlustunarpartý hjá föstudaginn 15. maí þar sem hljómsveitarmeðlimir munu einnig sjá um DJ-sett, segir í tilkynningu. Um lagið „So Close“ „So […]
Stórir fjárfestar og stéttarfélög bætast við hópinn á bak við Eyjagöng

Nýr hópur fjárfesta og stuðningsaðila hefur bæst við rannsóknarfasa Eyjaganga, samkvæmt tilkynningu frá Eyjagöngum ehf. Þar kemur fram að Eimskip, Olís, stéttarfélögin Drífandi, Jötunn og Verðandi, innviðasjóðurinn Innviðir fjárfestingar II slhf. og fjárfestingarfélagið MK 4 ehf. hafi gengið til liðs við verkefnið sem hluthafar og þegar greitt fyrir hlut sinn. Styrkir aðkoma þessara aðila bæði […]