Fyrsta ferð Herjólfs í Landeyjahöfn vorboði í snjókomunni

Herjólfur sigldi í gærkvöldi sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn eftir erfiðan kafla í samgöngum við Eyjar. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var um borð í þessari langþráðu ferð. Stemningin lét ekki á sér standa þrátt fyrir snjókomu og kulda. Við bryggjuna rakst Óskar á Stjána á Emmunni sem beið í ferðabílnum sínum eftir að komast […]
ÍBV sækir Val heim í dag

Kvennalið ÍBV á krefjandi verkefni fyrir höndum í dag þegar liðið mætir Val í Bestu deild kvenna. Leikurinn hefst klukkan 16:30 á N1-vellinum á Hlíðarenda. Eyjakonur hafa farið vel af stað í sumar og sitja í 2. sæti deildarinnar með 6 stig, jafnar toppliði Breiðabliks, en með lakari markatölu. Valur hefur unnið annan af tveimur fyrstu […]
Eyjarnar landa í Grindavík

Ísfisktogarar Bergs – Hugins, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafa fiskað vel að undanförnu. Þetta kemur fram í frétt á fréttasíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að túrarnir hafi verið stuttir, en veðrið hafi verið breytilegt. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey lét vel af fiskiríinu. „Við lönduðum fullfermi af karfa í Grindavík þann 30. apríl og lönduðum […]
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á ábyrga þróun bæjarfélagsins sem tryggir bæði lífsgæði íbúa og sterka innviði til framtíðar. Fjölgun íbúa, breyttar þarfir samfélagsins og aukin tækifæri kalla á skýra stefnu og markvissa uppbyggingu. Eitt af því er að tryggja nægt framboð lóða fyrir fjölbreytt búsetuform. Með því mætum við þörfum ólíkra hópa, ungs fólks, fjölskyldna […]
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara

Breytt samfélög Nútíma samfélög eru byggð á öðrum grunni en áður. Fjölskyldur bjuggu saman, fengu stuðning af hvort öðru og allir áttu hlutverk, sérstaklega eldra fólkið. Nú er áherslan á sjálfstæði, að búa ein og óstudd, fjarri fjölskyldunni sem áður myndaði félagsleg tengsl við aðra fjölskyldumeðlimi alla daga. Tækifærin og tíminn til samveru, nándar og […]
Síðasta Aglow samvera vetrarins

Síðasta Aglow samvera vetrarins verður miðvikudaginn 6. maí og verður hún með öðru sniði en venjulega. Við ætlum að koma saman í Landakirkju kl. 17.00 og fara yfir efni frá aðþjóðlegurm bænadegi kvenna sem var skrifuð af samkirkjulegum hópi kristinna nígerískara kvenna út frá orðum Jesú; Komið til mín og ég mun veita yður hvíld.( […]
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði

Í gærkvöldi var framkvæmd dýptarmæling í Landeyjahöfn og eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan vantar enn töluvert upp á að hægt sé að sigla til Landeyjahafnar nema við kjöraðstæður á háflóði. Þetta segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að Herjólfur stefni á að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag […]
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY

Framúrskarandi hópur matreiðslumeistara mun taka þátt í MATEY sjávarréttahátíðinni í Vestmannaeyjum dagana 22.-23.maí 2026 en sérhver þeirra hefur markað spor í íslenskri og alþjóðlegri matargerð. Þeir munu skapa einstaka matarupplifun þar sem ferskt íslenskt sjávarfang er í aðalhlutverki á nokkrum af helstu veitingastöðum Vestmannaeyja. Hákon Már Örvarsson á Gott Hákon Már er einn reyndasti og […]
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli

Kvennalið ÍBV tekur á móti Val í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í dag, þriðjudag. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum og hefst klukkan 18:00. Staðan í einvíginu er 1–0 fyrir Val, eftir sigur þeirra í fyrsta leik, og því ljóst að mikið er undir hjá Eyjakonum sem stefna á að jafna metin. […]
Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag

Áhöfn mun sigla Herjólfi III í prufusiglingu næstkomandi miðvikudag. Er það liður í því að fá útgefið nýtt haffærniskírteini. Þetta kemur fram í svari G. Péturs Matthíassonar, forstöðumanns samskiptadeildar Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Eyjafrétta. „Það fer áhöfn og siglir Herjólfi III hér á sundunum á miðvikudag sem er síðasti liður í því að fá útgefið nýtt […]
Gengur vel í kolmunnanum hjá Vinnslustöðinni

Bræðsla kolmunna hjá Vinnslustöðinni stendur nú yfir af fullum krafti og stefnir í að ljúki á næstu dögum. Alls hafa um 11 þúsund tonn verið unnin á tímabilinu. Frá þessu er greint í frétt á heimasíðu fyrirtækisins. Fram kemur í fréttinni að bræðsla hafi hafist þann 16. apríl sl. og hefur vinnslan gengið nánast linnulaust […]
Landeyjahöfn: Dýpið mælt í dag

Dýpkun í Landeyjahöfn hefur gengið ágætlega frá því um helgina, en dýpkun er enn háð flóðum. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Dýpkun hefur gengið ágætlega síðan á laugardaginn, en áfram er einungis hægt að dýpka á flóðinu,“ segir Pétur. Horfur næstu daga eru þó taldar góðar. „Ölduspá er […]
Kjarnaborinn laus – borun hafin á ný

Kjarnaborinn sem festist í hörðu bergi við framkvæmdir fyrir fyrirtækið Eyjagöng í liðinni viku hefur nú verið losaður og vinna komin aftur á fullt skrið. Eftir krefjandi daga þar sem borinn sat fastur í holu í afar hörðu bergi tókst loks að ná honum upp á föstudagsmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdaraðilum var það öflug loftpressa […]
Vöndum okkur!

Núna þegar tvær vikur eru til sveitarstjórnarkosninga tel ég mikilvægt að líta yfir farinn veg og tek ég bæjarfulltrúa Helgu Jóhönnu Harðardóttur þar til fyrirmyndar en hún gerði slíkt hið sama á sínum síðasta bæjarstjórnarfundi fyrir Eyjalistann á dögunum. Eyjalistinn hefur skipað meirihluta með Bæjarmálafélaginu Fyrir Heimaey sl. átta ár og hefur samstarfið einkennst af […]
Ósigraðir Blikar koma til Eyja – ÍBV leitar að fyrsta sigrinum

Í dag mætast ÍBV og Breiðablik á Hásteinsvelli í fimmtu umferð Bestu deildar karla. Staða liðanna í deildinni sýnir að verkefnið verður krefjandi fyrir heimamenn. Eyjamenn sitja í neðsta sæti deildarinnar með eitt stig eftir fyrstu fjórar umferðir, markatöluna 5:14 og hafa enn ekki unnið leik á tímabilinu. Gestirnir úr Kópavogi eru hins vegar í […]
Dýpkun gekk vel í morgun

Dýpkun í mynni Landeyjahafnar gekk mjög vel í morgun eftir að lítið hafði áunnist daginn áður. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Dýpkunin gekk mjög vel í morgun en lítið sem ekkert í gær,“ segir Pétur. Horfur næstu daga eru taldar góðar og vekja vonir um að hægt verði […]
Sjálfstæðisflokkur stærstur í Suðurkjördæmi

Nýjasti Þjóðarpúls Gallup sýnir að Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins og mælist með 28,5 prósenta fylgi ef kosið yrði til Alþingis í dag. Sjálfstæðisflokkurinn mælist næststærstur með 21,4 prósent og bætir við sig fylgi milli mánaða. Miðflokkurinn mælist með 18,9 prósent fylgi, Viðreisn með 10,6 prósent en Framsóknarflokkurinn, Flokkur fólksins og Vinstri græn mælast […]
Góð stemning á fjölskyldudegi á Stakkagerðistúni

Fjölskyldudagur Eyjalistans sem fram fór á Stakkagerðistúni í gær, 1. maí, heppnaðist vel og var ágætlega sóttur. Þar ríkti góð stemning og margir bæjarbúar lögðu leið sína á svæðið til að njóta samveru í blíðskaparveðri. Á túninu var boðið upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna og var greinilegt að bæði börn og fullorðnir kunnu […]
ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita

Kvennalið ÍBV í handbolta tryggði sér á dögunum sæti í úrslitum og mætir Val í dag. Leikurinn sem fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda hefst klukkan 15:00. Um er að ræða fyrsta leik í úrslitaeinvígi liðanna þar sem Íslandsmeistaratitillinn er undir. Eins og fram hefur komið meiddist Amalia Frøland, markvörður ÍBV íí undanúrslitaleik liðsins gegn […]
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?

Eins og flestir Íslendingar vita nú er Landeyjahöfn aðeins nothæf í 8-9 mánuði á ári, sextán árum eftir opnun. Þetta ástand er algjörlega óásættanlegt og skammarlegt fyrir ríkisstjórnir og samgönguráðherra síðustu 16 ára. Eru sérfræðingar í alvörunni ennþá að átta sig á straumum, sandburði, öldutíðni, öldulengd, stærð á skipi og öðrum hlutum sem geta haft […]