Krefjandi aðstæður við borun

Borunarvinna við Eyjagöng gekk ekki snurðulaust um síðustu helgi þegar kjarnabor festist í holu eftir að hafa farið í gegnum afar hart berg. Unnið er að því að leysa vandann og hefur viðbótartækjabúnaður verið fluttur til Eyja, að því er segir í frétt á vefnum Eyjagöng.is. Atvikið átti sér stað síðdegis laugardaginn 25. apríl þegar […]
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026

Í dag var tilkynnt um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja fyrir þetta ár. Jónína Björk Hjörleifsdóttir eða Jóný eins og hún er ávallt kölluð varð fyrir valinu í ár. Það var Njáll Ragnarsson formaður bæjarráðs sem kynnti valið og skólalúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur létt og skemmtileg lög, segir í umfjöllun á vef Vestmannaeyjabæjar. Þar segir jafnframt […]
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans

Herrakvöld fótboltans fór fram í Golfskálanum í gærkvöldi við afar góða stemningu. Kvöldið er orðið fastur liður í félagslífi knattspyrnuáhugamanna í Eyjum og var þátttaka góð að vanda. Óskar P. Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta var á staðnum og fangaði stemninguna í fjölda mynda sem fylgja fréttinni. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg þar sem veislustjórinn Bjarni Ólafur […]
MATEY Seafood Festival snýr aftur

Heimsklassa íslenskir gestakokkar verða á Einsa kalda, GOTT og NÆS veitingastað. Hátíðin sem er samstarfsverkefni Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja, Visit Vestmannaeyjar, Ísfélags., Vinnslustöðvarinnar hf, Laxey og Fab Lab Vestmannaeyjar verður haldin dagana 22.-23.maí næstkomandi. Vestmannaeyjar hafa fest sig í sessi sem einn áhugaverðasti mataráfangastaður landsins og nú snýr MATEY aftur í fjórða sinn. Við bjóðum þér í […]
1.maí, baráttudagur verkafólks á Íslandi

Til hamingju með daginn allt verkafólk Íslands, þið eruð undirstöður íslensks atvinnulífs og án ykkar værum við ekki hér í dag. Sú barátta sem þið hafið lagt í síðustu áratugi er ekki sjálfgefin. Til þurfti elju, baráttu,staðfestu og samstöðu. Þau réttindi sem þið hafið áunnið ykkur eru ekki sjálfgefin og geta auðveldlega glatast ef ekki […]
ÍBV tekur á móti Víkingi R. í dag

Í dag mætast ÍBV og Víkingur R. í Bestu deild kvenna á Hásteinsvelli. Bæði lið hafa byrjað tímabilið af krafti og má búast við spennandi viðureign. Bæði lið fóru með sigur af hólmi í sínum fyrsta leik – og það í markaleikjum. ÍBV hóf tímabilið með 4–3 sigri á Fram á Lambhagavelli, þar sem sóknarleikur […]
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið

Ný dýptarmæling í Landeyjahöfn, sem lauk rétt í þessu, sýnir að töluverður sandur hefur safnast upp frá síðustu mælingu. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Það hefur safnast ansi mikið frá síðustu mælingu,“ segir Pétur. Þrátt fyrir það er stefnt að því að hefja dýpkun á ný á morgun. […]
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna

Í dag undirrituðu Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs og Hrefna Jónsdóttir, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs samninga við styrkþegar vegna verkefna sem hlutu styrk. Frá þessu er greint á vef Vestmannaeyjabæjar. Þar segir enn fremur að í mars síðastliðnum hafi bæjarráð Vestmannaeyja auglýst í tengslum við síðari úthlutun ársins á styrkjum vegna ,,Viltu hafa áhrif” eftir umsóknum. […]
Neyðarkall úr Eyjum

Vestmanneyingar eru seinþreyttir til vandræða, það þykir ekki gott að kvarta. Nú er hins vegar komin upp staða varðandi samgöngur í Eyjum sem er óþolandi. Þetta er eitthvað í ætt við að svelta mjólkurkúna, hugbúnaðarfyrirtæki að borga ekki símareikninginn eða útgerðarmann sem kaupir ekki olíu á skipin. Vestmannaeyjar eru nefnilega einn af máttarstólpum Íslands í […]
Sigmundur Davíð með opinn fund

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins heldur opinn fund í Vestmannaeyjum í dag, fimmtudaginn 30.apríl. Fundurinn verður haldinn í Miðgarði, Strandvegi 51, klukkan 17. Sigmundur mun þar fara m.a yfir stöðuna í samgöngumálum Vestmannaeyja, auk annarra mála. Fundargestum gefst kostur á að spyrja Sigmund spurninga. Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá Miðflokknum í Vestmannaeyjum. (meira…)
Hæsti styrkurinn til Eyja

Vestmannaeyjabær fær hæsta styrkinn úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í ár. Styrkurinn rennur til uppbyggingar á Eldfelli. Alls fara um 107 milljónir króna í gerð göngustíga og trappa sem tengjast listaverkinu Sjónarhorn flakkarans, með það að markmiði að bæta öryggi gesta og vernda viðkvæmt náttúruumhverfi. Úthlutunin er hluti af heildarpakka upp á nærri 490 milljónir króna til […]
Dýptarmæling í dag

Dýpi í Landeyjahöfn verður mælt síðdegis í dag og mun niðurstaðan ráða miklu um framhaldið, bæði hvað varðar dýpkun og siglingar. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Miðað við ölduspá má reikna með að hægt verði að hefja dýpkun að nýju síðdegis á morgun,“ segir Pétur. Óvissa er […]
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!

Það er mikill kraftur og eftirvænting í okkur hjá Eyjalistanum þessa dagana. Við fögnum því að opna í dag nýja og glæsilega heimasíðu okkar, Eyjalistinn.is, þar sem hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um listann okkar og framtíðarsýn. Samhliða opnuninni birtum við stefnuskrá okkar fyrir komandi kjörtímabil í heild sinni. Stefnuskráin okkar er afrakstur […]
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs

Vetrarvertíðin er á lokametrunum og víða er handagangur í öskjunni – bæði á Íslandi og í Portúgal. Eyjafréttir endurbirta hér áhugaverða umfjöllun frá Vinnslustöðinni um hvernig vertíðin tengist áframhaldandi vinnslu og markaði erlendis, og hvernig störf fólks spanna þessa löngu leið frá hafi til hátíðarborðs. Frá Íslandsmiðum til Portúgals – vinnandi hendur tengja vertíð og […]
Herjólfur og Baldur báðir í áætlun á morgun

Vegagerðin, Herjólfur ohf. og bæjaryfirvöld hafa unnið að því síðasta sólarhring að tryggja betri samgöngur til/frá Vestmannaeyjum og var tilkynning send út í gærkvöldi að innviðarráðherra hefði samþykkt að Baldur muni koma til Eyja um helgina og sinna siglingum ásamt Herjólfi milli lands og Eyja. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir að mikið sé bókað […]
Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø

Nemendur við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum náðu frábærum árangri í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026 þegar fyrirtækið Eyjakonfekt hlaut 3. sæti. Verðlaunin eru ekki af verri endanum en með sætinu fylgir ferð til Tromsø þar sem nemendur taka þátt í Arctic Youth Championship dagana 18.–21. maí. Þar fá þeir tækifæri til að kynna verkefni sitt og […]
Baldur á leið til Eyja

Breiðafjarðarferjan Baldur fer til Vestmannaeyja og mun sigla milli lands og Eyja meðan ástandið í Landeyjahöfn varir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Samkomulag hefur náðst um þetta og reiknað með að Baldur hefji siglingar á föstudaginn en nokkurn tíma tekur fyrir skipið að sigla til Vestmannaeyja. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð […]
Margrét aðstoðar Miðflokkinn

Ákvörðun Sjálfstæðisflokksins um að gera Írisi Róbertsdóttur að bæjarstjóraefni hefur vakið talsverð viðbrögð innan flokksins. Í því samhengi fengu Eyjafréttir ábendingu um að Margrét Rós Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hafi sést á kosningaskrifstofu Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Á góða vini í Miðflokknum Við eftirgrennslan staðfesti Margrét að hún hygðist ekki styðja framboð Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. „Ég […]
Herrakvöld fótboltans

Á morgun fimmtudaginn 30. apríl verður haldið hið árlega herrakvöld fótboltans í Golfskálanum. Það verður einstök stemming á þessu kvöldi þar sem skemmtileg dagskrá verður í hávegum höfð. Veislustjóri verður okkar ástsæli Bjarni Ólafur Guðmundsson. Ræðumenn verða m.a. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. Brynjar Níelsson átti ekki heimagengt þar sem eiginkonan gaf honum […]
Fundur bæjarstjórnar í beinni

1626. fundur Bæjarstjórnar Vestmannaeyja verður haldinn í Ráðhúsinu í dag, miðvikudaginn 29. apríl og hefst hann kl. 14:00. Sjá má alla dagskrá fundarins fyrir neðan útsendingargluggann. Dagskrá: Almenn erindi 1. 201212068 – Umræða um samgöngumál 2. 202410002 – Almannavarnarlögn NSL4 3. 202604025 – Kjörtímabilið 2022-2026 Fundargerðir 4. 202603010F – Fræðsluráð Vestmannaeyja – 404 Liðir 4.1-4.5 […]