Samgöngur og sannindi

Gugga í gúmmíbát er á hraðari siglingu en Herjólfur þessa dagana. Lítið fer fyrir vinsældum Vegagerðarinnar í Vestmannaeyjum, en svör voru að berast um aðgerðir, til að brúa bilið þar til Landeyjahöfn opnast. Þrátt fyrir vel meinandi greinaskrif og góða greiða, þá gerðist lítið fyrr en fólk sýndi samstöðu. Engu að síður bíður bæjarfélagið brjálað […]
Staðan í Landeyjahöfn

Stefnt er að því að mæla dýpið í Landeyjahöfn á morgun eða á föstudag, samkvæmt nýjum upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Spáin er þannig núna að ekki er útlit fyrir að hægt sé að halda áfram dýpkun fyrr en á seinna flóði á föstudag,“ segir Pétur. Herjólfur hefur stefnt að því að […]
Vestmannaeyjahöfn, lífæð samfélagsins

Vestmannaeyjahöfn býr yfir miklum tækifærum. Þar starfa tvö af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins auk umfangsmikillar landeldisstöðvar. Starfsemin í landeldinu vex hratt og stefnt er að fullri framleiðslu í lok kjörtímabils. Helsta áskorunin snýr að útflutningi. Því er brýnt að ráðist verði í nauðsynlegar breytingar og framkvæmdir sem tryggja varanlega lausn á flutningsmálum innan skýrs tímaramma. Takmörkuð […]
Erfið staða í Landeyjahöfn

Á vef Vegagerðarinnar er farið yfir stöðuna í sjósamgöngum Eyjamanna í vetur. Lesa má umfjöllunina í heild hér að neðan. Dýpkun í Landeyjahöfn þetta vorið hefur gengið óvenju illa og höfnin lokuð um nokkurt skeið og lengur en áður. Veður og sjólag undanfarnar vikur og mánuði hafa gert það að verkum að erfiðlega hefur gengið […]
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar

Til að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem uppi hefur verið í samgöngumálum í Vestmannaeyjum síðustu vikur verður samningur um áætlunarflug milli Eyja og Reykjavíkur framlengdur og flugferðum fjölgað í tvær á dag, frá og með fimmtudeginum 30. apríl. Þá standa vonir til að hægt verði að opna Landeyjahöfn á ný í næstu viku, gangi […]
Hinkrum við, vöndum okkur betur

Rúmlega 1,4 milljarð króna kostar að byggja 7 nýja búningsklefa og fokhelda efri hæð við íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Bæjarstjórn Vestmannaeyja tekur lokaákvörðun um framhaldið á sínum næsta fundi á morgun. Ekki er hægt að finna neina umfjöllun um framkvæmdina í fundagerðum: framkvæmda og hafnarráðs fjölskyldu og tómstundarráðs fræðsluráðs Framkvæmdin mun draga til sín gríðarlega mikið […]
Er Herjólfsferð örugg ferð?

Nú er aldeilis ástand í samgöngumálum okkar Eyjamanna. Reynt hefur verið að ná eyrum ráðamanna án nokkurs árangurs. Hvar eru þingmenn meirihlutans á Suðurlandi? Halló er einhver heima? Ásthildur Lóa í Flokki fólksins? Víðir Reynis í Samfylkingunni? og Sandra Sigurðardóttir í Viðreisn? Í gær var Herjólfur að sigla í 3,5 m ölduhæð á einni skrúfu og gekk á milli 6 og 7 mílum og kom til Eyja rúmlega tvö í nótt. Meira að segja Áflsnesið fer aðeins hraðar. Það er alls ekki við áhöfn Herjólfs að sakast sem sýnir alltaf elju og dugnað í sínum störfum. Nú er hækkandi alda og hvað þá? Því spyr maður, hvar er gamli Herjólfur […]
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fiskað afar vel að undanförnu. Aflabrögðin hafa verið slík að þurft hefur að hægja á skipunum þannig að þau hafa legið lengur í höfn en venja er til að loknum löndunum, Bergey landaði fullfermi í Grindavík á föstudag og var Jón Valgeirsson skipstjóri ánægður með veiðiferðina. „Við vorum […]
Skyldumæting í höllina í dag!

ÍBV stendur fyrir samheldni, seiglu og stolti sem býr í hjarta okkar Eyjamanna. Í dag kl. 18 spilar kvennalið ÍBV í handbolta oddaleik í undanúrslitum Olísdeildarinnar gegn Haukum. Hér er ekki bara um venjulegan leik að ræða, þetta er slagur um að komast áfram í úrslitin. Þess vegna þurfum við öll að mæta og styðja liðið. […]
Brjóstaskimun í Eyjum

Brjóstamiðstöð Landspítala verður í samstarfi við Heilsugæsluna á ferð um landið vorið 2026 með brjóstaskimun. Lögð er rík áhersla á að konur nýti sér þessa þjónustu, sjá leiðbeiningar um bókun hér að neðan. Með brjóstaskimun er hægt að greina brjóstakrabbamein á byrjunarstigi og draga þannig verulega úr dánartíðni vegna sjúkdómsins. Áhersla er lögð á að konur nýti sér þjónustuna […]
Allir út að plokka á Heimaey á morgun

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land á morgun., sunnudaginn 26. apríl og verður efnt til sameiginlegs hreinsunardags á Heimaey af því tilefni. Safnast verður saman klukkan 11:00 í garðinum við suðurhlið Ráðhússins þar sem pokar og plokktangir verða í boði á meðan birgðir endast. Klukkan 13:00 býður Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar til grillveislu á sama stað. […]
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“

Á vef Vinnslustöðvarinnar er fjallað um þátttöku fyrirtækisins á stærstu sjávarútvegssýningu heims, Seafood Expo Global 2026, sem haldin var í Barcelona dagana 21.–23. apríl. Þar kemur fram að mikilvæg tengsl hafi verið styrkt og innsýn fengin í krefjandi en spennandi stöðu markaða. Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar tók þátt í sýningunni, sem er sú stærsta til þessa, með […]
Vorhátíð Landakirkju

Árleg vorhátíð Landakirkju fer fram á morgun, sunnudaginn, þann 26. apríl kl. 11:00. Hátíðin er uppskeruhátíð vetrarstarfs kirkjunnar, segir í frétt á vef Landakirkju. Um er að ræða fjölskyldumessu þar sem fram koma Kór Landakirkju og Sunday School Party Band koma fram og leiða sönginn sem verður sunnudagaskólalög í bland við létta sálma. Að lokinni […]
Byggjum þetta bara

Ég get ekki sætt mig við þessa viðbyggingu sem er að fara af stað við Íþróttamiðstöðina. Sem fyrrverandi starfsmaður í þessu húsi þá get ég vottað að starfsfólkið þarna er á hlaupum um allt hús því nú þegar er það ekki vel skipulagt. Með því að bæta við klefum á þessa hlið er búið að […]
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag

Kvennalið ÍBV í handbolta mætir Haukum í dag í fjórða leik liðanna í úrslitakeppninni. Leikið verður í Kuehne+Nagel höllinni og hefst leikurinn klukkan 15:00. ÍBV er í lykilstöðu í einvíginu eftir dramatískan sigur í síðasta leik, þar sem Eyjakonur höfðu betur 38–37 eftir tvíframlengdan leik. Með sigrinum náði liðið 2–1 forystu í einvíginu og getur […]
Stelpurnar sækja Fram heim

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu hefur leik í dag í Bestu deildinni þegar liðið sækir Fram heim á Lambhagavöllinn. Flautað verður til leiks klukkan 13:00. Leikurinn ereins og áður segir í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna og verður fróðlegt að sjá hvernig Eyjaliðið mætir til leiks í upphafi tímabils. Fram kemur einnig inn í mótið með […]
Vonbrigði með dýpkun

Nýjar dýptarmælingar við Landeyjahöfn sýna að árangur dýpkunar er minni en vonast var til og vantar enn talsvert upp á að ná nægilegu dýpi í hafnarmynninu. „Þetta eru vægast sagt vonbrigði að dýpið sé ekki orðið meira en raun ber vitni,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, í samtali við Eyjafréttir. Samkvæmt mælingum hefur […]
Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar

Lykillinn að því að þessi framkvæmd verði til fyrirmyndar liggur í þeirri gríðarlegu sérþekkingu sem finnst innan veggja hússins. Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar, þjálfarar og aðrir á vegum ÍBV eru þeir sérfræðingar sem lifa og hrærast í þessu umhverfi á hverjum degi. Þau búa yfir hagnýtri þekkingu á flæði, nýtingu og þörfum iðkenda sem erfitt er að […]
Aðstæður versnuðu í gær – gluggi í dag

Dýpkun í Landeyjahöfn hefur gengið ágætlega í síðasta dýpkunarglugga, en aðstæður versnuðu í gær þegar sjólag þyngdist. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Dýpkun hefur gengið ágætlega í þessum síðasta glugga. Í gær versnuðu aðstæður þegar ölduhæð jókst og öldulengd fór í um 85 metra, sem gerði vinnuna töluvert […]
Hafnað um stækkun ramps

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur hafnað beiðni um breytingu á byggingarleyfi við Strandveg 47A. Málinu var vísað til ráðsins frá 79. fundi byggingarfulltrúa, þar sem Björgvin Björgvinsson, fyrir hönd eiganda fasteignarinnar, lagði fram uppfærðan aðaluppdrátt. Helsta breytingin fólst í stækkun á rampi fyrir framan húsið. Samkvæmt nýjum teikningum átti rampurinn að ná 1,4 metra út […]