Stelpurnar klárar í slaginn

Það styttist óðum í að keppni í Bestu deild kvenna fari af stað og undirbúningur liðanna er á lokametrunum. Kvennalið ÍBV heldur áfram að fínpússa leik sinn fyrir komandi tímabil og æfði liðið af krafti á Hásteinsvelli í gær. Halldór B. Halldórsson kíkti á æfingu liðsins og festi stemninguna á myndband, þar sem sjá má […]
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum

Jóna Heiða Sigurlásdóttir opnar einkasýningu í Sagnheimum í dag, sumardaginn fyrsta kl. 16:00 Sýningin fjallar um hamskiptin sem við göngum í gegnum á lífsleiðinni og það sem við skiljum eftir okkur þegar við höldum áfram. Hlakka til að sjá ykkur sem flest á opnuninni, segir í tilkynningu frá listamanninum. (meira…)
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra um stöðu eldsneytisbirgða fyrir flugflota Landhelgisgæslunnar utan höfuðborgarsvæðisins. Eyjafréttir fjölluðu í gær um eldsneytisvanda í Vestmannaeyjum, þar sem eldsneyti fyrir þyrlur hefur verið útrunnið og óhæft til notkunar frá því í janúar. Í fyrirspurninni óskar Karl Gauti eftir svörum við eftirfarandi atriðum: Hvernig er […]
Gröfuþjónusta Brinks lægstbjóðandi í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði

Tilboð í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði voru opnuð 20. apríl síðastliðinn og bárust alls þrjú tilboð í verkið. Verkefnið felur í sér gatnagerð og uppbyggingu fráveitu í Miðgerði. Lægsta tilboðið kom frá Gröfuþjónusta Brinks ehf. og hljóðar það upp á 83.999.961 krónu. Tilboðið er töluvert undir kostnaðaráætlun sem nam 117.215.500 krónum, eða um 33 […]
Sumarið heilsar með stórleik

ÍBV fær KR í heimsókn á Hásteinsvöll í dag, á sumardaginn fyrsta í leik í Bestu deild karla. Flautað verður til leiks klukkan 13:00 á Hásteinsvelli. KR situr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir tvo leiki og markatöluna 8:4. Ljóst er því að verðugt verkefni bíður Eyjamanna, sem hafa farið rólegar af stað […]
Tilboð upp á 480 milljónir í Ægisgötu 2

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tilboð upp á 480 milljónir króna í fasteignina að Ægisgötu 2, með fyrirvara um staðfestingu bæjarstjórnar. Eignin, sem er á 2. og 3. hæð hússins, var sett í söluferli þann 16. febrúar síðastliðinn og óskað eftir tilboðum með fresti til 20. mars. Engin formleg tilboð bárust innan þess frests. Á fundi […]
Efri árin skipta máli

Málefni eldri borgara skipta sífellt meira máli í samfélagi sem er að eldast. Framtíðarsýn í þessum málaflokki þarf að byggjast á raunverulegri þekkingu af vettvangi, virðingu fyrir einstaklingnum og lausnum sem stuðla að sjálfstæði, virkni og lífsgæðum. Sem sjúkraliði og deildarstjóri dagdvalar hef ég áralanga reynslu af daglegu starfi með eldra fólki. Sú reynsla mótar […]
Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum

Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum birtu í dag tilkynningu á vef sínum um stöðu samgöngumála Eyjamanna. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs á mánudag, þar sem farið var yfir alvarlega stöðu og þær aðgerðir sem unnið er að í kjölfarið. Vegamálastjóri og fulltrúar Vegagerðarinnar sátu fund bæjarráðs Vestmannaeyja í gær í gegnum fjarfundarbúnað þar sem farið […]
Eldsneytisvandi í Eyjum

Eldsneyti fyrir þyrlur Landhelgisgæslu Íslands í Vestmannaeyjum hefur verið óhæft til notkunar frá því í lok janúar, sem getur haft áhrif á viðbragðsgetu í leitar- og björgunaraðgerðum á svæðinu. Unnið er að lausn málsins, að sögn Ásgeirs Erlendssonar samskiptastjóra gæslunnar. Í samtali við Eyjafréttir staðfestir Ásgeir Erlendsson að eldsneytið sem er á tanki á Vestmannaeyjaflugvelli […]
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík

Aðalfundur Ísfélagsins fór fram í síðustu viku og var vel sóttur, bæði í streymi og á staðnum. Árið 2025 gekk vel hjá félaginu, bæði í bolfiski og uppsjávarfiski, þrátt fyrir að loðnuvertíð hafi brugðist. Velta félagsins nam 213 milljónum Bandaríkjadala og hagnaður var 25 milljónir dala. Félagið fékk nýtt skip á síðasta ári þegar ný […]
Fyrstu borsýni komin upp úr jörðu

Fyrstu sýni úr kjarnaboruninni í Vestmannaeyjum komu upp úr holunni eftir hádegi á mánudaginn síðastliðinn. Í upphafi var holan fóðruð niður á um 15 metra dýpi og er fyrsta borsýnið því tekið þaðan. Með þessu er hafinn sá hluti rannsóknarinnar sem felst í að greina eiginleika jarðlaganna með beinum sýnatökum, segir í frétt á vefnum […]
Dýpkun gekk ágætlega í gærkvöldi

Dýpkun í Landeyjahöfn gekk ágætlega í gærkvöldi og hafa aðstæður leyft áframhaldandi vinnu í morgun. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Dýpkun gekk ágætlega í gærkvöldi. Hún hófst aftur klukkan 08:00 í morgun og útlit er fyrir að aðstæður verði áfram ásættanlegar á þessu flóði,“ segir Pétur. Eftir erfiða […]
Öflugur rekstur lykilatriði

Undirstaða góðs rekstrar er ábyrg fjármálastjórn, skýr og markviss forgangsröðun ásamt öflugu eftirliti með tekjum og útgjöldum. Markvisst hefur verið unnið að þessum þáttum hjá Vestmannaeyjabæ og hefur það skilað sér í jákvæðum rekstri og skuldlausum sveitarsjóði. Í því efnahagsumhverfi sem nú ríkir, þar sem bæði vextir og verðbólga eru há, skiptir miklu máli að […]
“Selfies” eru ekki hagsmunagæsla

Meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur árum saman lýst yfir eigin ágæti í hagsmunagæslu. Af einhverri ástæðu hefur minnihlutinn tekið undir. Raunveruleikinn segir aðra sögu. Þá vaknar einföld spurning: Hvaða hagsmuni er í raun verið að verja? Innantómt hjal Myndir og yfirlýsingar um fundi með ráðherrum og „árangur“ í samgöngumálum eru ekkert annað en innantómt hjal. Raunveruleikinn […]
ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram

ÍBV og Haukar mætast í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta. Staðan í einvíginu er jöfn, 1–1, og því ljóst að mikið er undir þegar flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 18:30. Eyjakonur fara inn í leikinn fullar sjálfstrausts eftir sterkan sigur í síðasta leik liðanna, þar sem þær […]
Ágæt veiði hjá Eyjunum

Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE hafa fiskað ágætlega að undanförnu. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Bergey landaði fullfermi í Þorlákshöfn á sunnudag, Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Grindavík í gær. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum og voru þeir allir ágætlega sáttir við veiðina. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að túrinn […]
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“

Rafmagnslaust varð í Vestmannaeyjum að kvöldi 6. apríl síðastliðinn þegar yfirspennuvörn í dreifikerfi sló út og tók þar með rafmagn af allri eyjunni. Þetta gerðist þrátt fyrir að flutningskerfi Landsnets héldi, samkvæmt upplýsingum þaðan. Sjá einnig: Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært Truflun vegna eldinga en afhending hélt Samkvæmt svörum Landsnets varð truflun í […]
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld

Ekki tókst að hefja dýpkun í Landeyjahöfn á flóðinu í morgun þar sem aðstæður reyndust óhagstæðar. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Það gekk ekki að dýpka á flóðinu í morgun, ölduhæð og öldulengd hömluðu því og eins brot í hafnarmynninu,“ segir Pétur. Gert er ráð fyrir að ný […]
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð

Laxey hefur samið við AKVA group um hönnun og afhendingu nýrrar seiðastöðvar í Vestmannaeyjum, svonefndrar Seiðastöðvar II. Verkefnið markar næsta skref í uppbyggingu félagsins á landeldi, að því er segir í tilkynningu á vefsíðu Laxeyjar. Tilkynninguna má lesa hér að neðan. Laxey hefur gert samning við AKVA group um hönnun og afhendingu nýrrar seiðastöðvar í […]
Vestmannaeyjar, eyjan okkar

Vestmannaeyjar, eyjan okkar er ein fallegasta náttúruperla Íslands og við ættum að fara vel með hana og vernda hana eins og við getum. Auðvitað getur verið erfitt, tímafrekt og sundum meiri kostnaður að byggja með henni en yfir hana en verður það ekki þess virði að lokum. Viljum við ekki halda í fallegu klettana okkar […]