Smári og Sigurlína í Wipe Out í kvöld

Annar þátturinn í þáttaröðinni Wipe Out er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Fyrsti þátturinn var bráðfyndinn en Eyjamenn fá smá aukabónus í þætti kvöldsins þar sem Eyjahjónin öflugu Smári Harðarson og Sigurlína Guðjónsdóttir verða í þætti kvöldsins. Á dögunum var rætt við þau Smára og Sigurlínu í Fréttum um þátttökuna og má lesa hluta […]

Hægt að lesa Stofna á netinu

Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna í Vestmanneyjum, fagnar 80 ára afmæli félagsins sunnudaginn 20. desember. Af því tilefni býður félagið til kaffiboðs í Ásgarði klukkan 15.00 á sunnudag þar sem farið verður yfir sögu félagsins á léttan og skemmtilegan hátt. Í tengslum við afmælið hefur blað Eyverja, Stofnar, verið skannað inn en elsta blað Stofna er […]

Gerðu jafntefli gegn KR

Karlalið ÍBV í knattspyrnu gerði jafntefli gegn KR í gær en liðin áttust við í æfingaleik í Egilshöll. Eiður Aron Sigurbjörnsson og Tryggvi Guðmundsson komu ÍBV í 2:0 áður en KR-ingar jöfnuðu metin og urðu lokatölur því 2:2. Leikurinn var þó ekki leikinn í heildar 90 mínútur þar sem liðin höfðu takmarkaðan tíma inni í […]

Jet Black Joe í Höllinni á morgun

Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir í mörg ár í Eyjum! Risabandið og rokkgoðin í Jet Black Joe mæta í Höllina í Vestmannaeyjum laugardaginn 19. desember. Nú verður hrikalega kátt í Höllinni og lofa liðsmenn sveitarinnar miklu stuði, enda mjög langt síðan þeir komu síðast til Eyja. (meira…)

Frábærir tónleikar Mandal

Í gærkvöldi hélt tónlistarhópurinn Mandal tónleika í Friðrikskapellu í Reykjavík. Í hópnum eru fjórir listamenn. Fyrst skal telja Báru Grímsdóttur sem um hríð var tónlistarkennari í Eyjum, þá Chris Foster og svo bakarahjónin frábæru Helga Jónsdóttir og Arnór Hermannsson. Öll syngja þau frábærlega, ýmist einradda eða margradda og leika undir á gítara, langspil, hörpu og […]

Ár framkvæmda og uppbyggingar í Vestmannaeyjum

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í gær fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. Í fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir að A-hluti sveitarsjóðs skili afgangi upp á rúmar 132 milljónir. Þó er gert ráð fyrir að útsvarstekjur verði tæplega 10% minni en rauntekjur útsvars vegna ársins 2009. Tekjuáætlun er því varfærin. Gert er ráð fyrir að […]

Vantar einhvern til að pota inn mörkum

„Brottrekstur knattspyrnustjórans breytir engu hvað mig varðar en þetta er nýtt met því þjálfararnir sem ég fæ hafa yfirleitt verið reknir tveimur til þremur mánuðum eftir að ég kem,“ sagði Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson við Morgunblaðið í gær en hann bjóst við að ganga formlega frá félagaskiptum til Reading í gær, sólarhring eftir að knattspyrnustjórinn […]

Gleymdi kjöti á steikingarpönnunni

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út klukkan 4:20 í nótt þegar tilkynnt var um mikinn reyk í húsinu við Brekastíg 28. Tvær íbúðir eru í húsinu og kom reykurinn úr kjallaraíbúð hússins. Við nánari skoðun kom í ljós að enginn eldur væri laus, heldur gleymdist kjöt á steikingarpönnunni sem varð til þess að reykurinn myndaðist. (meira…)

�??Gaman að ná þessu meti�??

„Það er gaman að ná þessu meti og ekki verra að vera með þetta í ferilsskránni. Leikirnir hrannast upp hjá manni og árin líka og þetta er sú deild sem maður fylgdist mikið með þegar maður var gutti og sú deild sem ég vildi helst spila í,“ sagði Hermann Hreiðarsson í viðtali í Morgunblaðinu. (meira…)

�?tli tónlistin sé ekki popprokk

Eyjahljómsveitin Afrek gefur nú út sinn fyrsta geisladisk sem ber nafn sveitarinnar. Diskurinn fór í al­menna sölu í síðustu viku en á honum eru tólf frumsamin lög. Upptökur hafa staðið yfir síðasta árið og út­koman lítur nú dagsins ljós. Fjöl­margir Eyjamenn koma að gerð disksins en sveitin fjármagnar hann alfarið sjálf. (meira…)

Skemmtilegir taktar og mikill efniviður

Hin árlega jólasýning Fimleika­félagsins Ránar var haldin síðasta laug­ar­dag í íþróttamiðstöð­inni. Jólasýningin hefur fyrir löngu skapað sér fastan sess í undirbúningi jólanna, sérstaklega hjá þeim fjölskyldum sem eiga börn sem iðka hina göfugu íþrótt sem fimleikarnir eru. Sýningin í ár var bráðskemmtileg, krakk­arnir sýndu skemmtilega takta og fimleika­félagið á mikinn efnivið fyrir komandi ár. Hægt […]

Eigum alltaf að bjóða ódýrasta bensínið

Bensínsalan Orkan hefur sett upp eina bensíndælu við verslunina Tvist­inn við Faxastíg, þar sem Skelj­ungur var áður með bensínsölu. Stöðin er sjálfsafgreiðslustöð, eins og allar 26 Orkustöðvarnar eru en Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skelj­ungs, sem á og rekur Orku­stöðvarnar, sagði ástæðu opnun stöðvarinnar í Eyjum tvíþætta. (meira…)

27 buðu í smíði farþegaaðstöðu í Landeyjahöfn

Alls buðu 27 aðilar í smíði farþegaaðstöðu í Landeyjahöfn en tilboðin voru opnuð hjá Siglingastofnun fyrr í dag. Lægsta tilboðið átti SÁ verklausnir, rúmar 96,7 milljónir. Um er að ræða byggingu 316 fermetra steinsteypta byggingu á tveimur hæðum en verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2010. Tilboðin má sjá hér að neðan. (meira…)

Mikilvægt að Sparisjóðurinn eflist

Stefán Sigurjónsson sendir mér svar hér á síðunni við grein minni um bankamál, útrás og Icesave nú á dögunum. Mér er bæði skylt og ljúft að svara þeim spurningum sem Stefán beinir til mín. Áður en ég svara spurningum Stefáns neita ég alfarið að Sparisjóður Vestmannaeyja hafi gabbað fé út úr stofnfjáreigendum sínum. Stofnfjáreigendur ákváðu […]

Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða konu sem hann hrinti í jörðina fyrir utan skemmtistað í Vestmannaeyjum rúmar 700 þúsund krónur í skaða- og miskabætur. Jafnframt var honum gert að greiða rúma hálfa milljón í sakarkostnað. (meira…)

�??Greiðum þeim til baka með sanngjörnum hætti�??

Þetta er fyrirsögn á grein sem Ragnar Óskarsson skrifar í Eyjafréttir. Ég bæði vonaði og hélt að hann ætti við Sparisjóðinn og ábyrgðarmenn hans. Þ.e.a.s. að Sparisjóðurinn ætlaði að greiða ábyrgðarmönnum sínum aftur það fé sem Sparisjóðurinn gabbaði út úr þeim. Sparisjóðurinn tapaði því öllu og fjórum sinnum þeirri upphæð á innan við ári. Það […]

Að skera niður

Allir landsmenn gera sér grein fyrir því að niðurskurður er óhjákvæmilegur hjá hinu opinbera. Hann verður erfiður og við eigum öll eftir að finna fyrir honum. Mikilvægt er að við þann niðurskurð verði beitt skýrri forgangsröðun og jafnræðis gætt. Fjárlagafrumvarpið 2010 sem er nú til meðferðar á Alþingi uppfyllir ekki framangreindar kröfur, því miður. (meira…)

�?tlar að hlaupa 100 km

Sæbjörg Logadóttir, ætlar að hlaupa 100 km á hlaupabretti á Hressó á mánudaginn. Sæbjörg ætlar að byrja að hlaupa klukkan átta um morguninn og ætlar sér tíu klukkutíma í hlaupið. Sæbjörg hefur náð athyglis­verðum árangri í Reykja­víkur­maraþoninu þar sem hún hefur verið meðal hinna fremstu. Ekki er Fréttum kunnugt um að íslenskar konur hafi hlaupið […]

Hermann leikjahæsti Norðurlandabúinn í enska eftir leikinn í kvöld

Hermann Hreiðarsson, varnarmaður Portsmouth, mun setja met ef að hann leikur með liðinu gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Ef Hermann kemur við sögu mun hann leika sinn 319.leik í ensku úrvalsdeildinni. Um leið verður hann leikjahæsti Norðurlandabúinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. (meira…)

�?að getur allt gerst

Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld en botnlið ensku úrvalsdeildarinnar heimsækir topplið Chelsea á Stamford Bridge. Hermann hefur einu sinni fagnað sigri á Stamford, þá með liði Charlton, en Portsmouth hefur aldrei náð að vinna sigur á Brúnni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.