Bæjarstjórn fundar í dag – samgöngur, lögreglumál og vinnuskólinn á dagskrá
Frá fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman til fundar í Ráðhúsinu í dag, miðvikudaginn 1. júlí, og hefst fundurinn klukkan 14:00. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu hér að neðan.

Meðal helstu mála á dagskrá eru umræður um samgöngumál, fyrirhugaða fækkun lögregluembætta og samkomulag ríkis og sveitarfélaga um þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Einnig mun bæjarstjóri fara yfir helstu mál sem eru í vinnslu hjá sveitarfélaginu.

Bæjarstjórn tekur jafnframt fyrir fjölda mála sem koma frá ráðum og nefndum bæjarins. Þar á meðal er umræða um stöðu vinnuskóla Vestmannaeyjabæjar, sem hefur verið mikið til umræðu undanfarna daga, auk staðfestingar á fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2027 og viðaukum við fjárhagsáætlun yfirstandandi árs.

Á dagskránni eru einnig skipulagsmál, þar á meðal breytingar á aðalskipulagi vegna fyrirhugaðrar neysluvatnslagnar til Vestmannaeyja og stækkunar iðnaðarsvæðisins í Viðlagafjöru. Þá verður fjallað um heilbrigðismál, erindisbréf fulltrúa í ráðum bæjarins og fleiri stjórnsýslumál. Alla dagskrá fundarins má sjá fyrir neðan útsendingargluggann.

Dagskrá:

Almenn mál

1. Umræða um samgöngumál.

2. Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda – breyting á skilgreiningu og ábyrgð. 

3. Siðareglur kjörinna fulltrúa Vestmannaeyjabæjar.

4. Fyrirhuguð fækkun lögregluembætta. 

5. Bæjarstjóri: Yfirferð helstu mála.

 

Fundargerðir

6. Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja nr. 329

Liðir 1-5 liggja fyrir til upplýsinga.

 

7. Fræðsluráð Vestmannaeyja nr. 406

Liður 3, GRV, úthlutun kennslustunda til skólastarfs, liggur fyrir til staðfestingar.

Liðir 1-2 og 4-7 liggja fyrir til upplýsinga.

 

8. Bæjarráð Vestmannaeyja nr. 3260

Liður 1, Hluthafafundur Eyglóar eignarhaldsfélags ehf., liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 5, Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027, liggur fyrir til staðfestingar.

Liðir 2-4 og 6-16 liggja fyrir til upplýsinga.

 

9. Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja nr. 330

Liður 2, Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 1 og 3-4 liggja fyrir til upplýsinga.

 

10. Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja nr. 440

Liður 3, Breyting á aðalskipulagi – NSL4 Neysluvatnslögn til Eyja, liggur fyrir til staðfestingar. Staðfesting á skipulagsáætlunum sem fela í sér breytingu á aðalskipulagi.

Liður 4, Stækkun iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru – Breyting á aðal- og deiliskipulagi. Staðfesting á skipulagsáætlunum sem fela í sér breytingu á aðal- og deiliskipulagi.

Liðir 1-2 og 5-20 liggja fyrir til upplýsinga.

 

11. Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja nr. 338

Liðir 1-11 liggja fyrir til upplýsinga.

 

12. Bæjarráð Vestmannaeyja  3261

Liður 1, Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027, liggur fyrir staðfestingar.

Liður 5, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 7, Umræða um heilbrigðismál, liggur fyrir til umræðu.

Liður 9, Erindisbréf til fulltrúa í ráðum skv. bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar 2026, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 11, Prókúruumboð, liggur fyrir til staðfestingar.

Liðir 2-4, 6, 8, 10 og 12-21 liggja fyrir til upplýsinga.

 

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.