Bifreiðaverkstæði Nethamars opnar á ný
Asgeir Nethamar 20241022 111915 TMS
Ásgeir á nýja verkstæði Nethamars. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bifreiðaverkstæði Nethamars hefur opnað á ný. Verkstæðið er til húsa á Flötum, nánar tiltekið númer 21. Þar er einnig rekið vélaverkstæði.  Á nýja Nethamri verður boðið upp á Toyota þjónustu ásamt allri almennri viðgerðarþjónustu á öllum helstu bíltegundum.

Eyjamaðurinn Ásgeir Sigurðsson er fluttur aftur heim – reynslunni ríkari – eftir að hafa búið á höfuðborgarsvæðinu. Hann lærði bifvélavirkjun og hefur starfað sem slíkur í tæpa þrjá áratugi. Hann mun annast allan daglegan rekstur hjá Nethamri.

Ásgeir vill koma á framfæri við bæjarbúa að hægt er að hafa samband við hann á Nethamri ef það eru einhverjar spurningar, til að panta tíma eða bara í annað spjall.

,,Það næst í mig í síma 4811216 eða gegnum fésbókina (Nethamar ehf Vestmannaeyjum) og svo er hægt að senda tölvupóst á asgeir@nethamar.is nú eða bara kíkja í heimsókn að Flötum 21, allir hjartanlega velkomnir gamlir viðskiptavinir sem og nýir.” segir hann. Nánar verður rætt við Ásgeir í næsta blaði Eyjafrétta.

Bifreiðaverkstæði Nethamars á Flötum.

Nýjustu fréttir

Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.