Britney Cots áfram í Eyjum
Cots Ibv Fb

Britney Cots hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Frá þessu er greint í tilkynningu á facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍBV. Britney hóf ferilinn með meistaraflokki aðeins 15 ára gömul í Frakklandi og var í æf­inga­hóp­um yngri landsliða í Frakklandi en spil­ar nú með A-landsliði Senegal.

„Hún tók þátt í Afríkumeistaramótinu sem haldið var í Kamerún árið 2021 og svo aftur árið 2022 þegar mótið var haldið í Senegal og enduðu þær þar í 4 sæti. Britney var einnig valin í leikmannahóp Senegal árið 2024 en gaf ekki kost á sér vegna meiðsla. Senegal er búið að tryggja sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fer fram nú í ár í Þýskalandi og Hollandi og vonumst við til að sjá hana í þeim hópi.

Britney kom til Íslands árið 2018 og spilaði fyrir FH og Stjörnuna áður en hún gekk til liðs við ÍBV árið 2023. Britney hefur spilað sem vinstri skytta og einnig verið mikilvægur hlekkur í varnarleik liðsins. Við erum mjög ánægð með að hafa tryggt okkur krafta hennar áfram næstu árin,” segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.