Deiliskipulag á íþróttasvæði. Skipulagsbreyting - tjaldsvæði.
Í framhaldi af bókun í máli nr. 201512014 leggur Skipulagsfulltrúi fyrir ráðið tillögu af breyttu deiliskipulagi á íþróttasvæði við Hástein. Tillagan sem unnin er af Alta ehf. sýnir breytingar á grasflöt sunnan �?órsvallar, þar sem fyrirhugað er að byggja þjónustumiðstöð og 33 smáhýsi í “Glamping” stíl.
Breytingartillagan var kynnt á opnum íbúafundi þann 1 mars sl.
Ráðið hefur fyrr bókað að það líti jákvæðum augum á uppbyggingu smáhýsa líkt og umsókn gerir ráð fyrir. Að því sögðu, þá vill ráðið þakka þeim fjölmörgu sem mættu á íbúafund um deiliskipulagsbreytinguna en slíkir fundir eru haldnir til að efla samráð við íbúa og gefa þeim færi á að koma ábendingum beint til kjörinna fulltrúa. Eftir þann fund er ljóst að bregðast þarf við þeim ábendingum sem þar komu fram varðandi tjaldsvæði við �?órsheimili. Slíkt mun verða gert og verða tillögur til úrbóta kynntar íbúum á næstu misserum. Til að auðvelda ráðinu úrvinnslu ábendinga íbúa felur ráðið skipulagsfulltrúa og skipulagsráðgjafa frá ALTA ehf. að vinna kostamat vegna uppbyggingar smáhýsa í Vestmannaeyjum á þremur svæðum,-sunnan við �?órsvöll, vestan Hásteinsvallar og við þjónustumiðstöð tjaldsvæðis í Herjólfsdal. Ráðið frestar erindinu þar til kostamat liggur fyrir.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.