Ekki þarf að segja upp starfsmönnum hjúkrunarheimila
Ekki þarf að segja upp öllum starfsmönnum hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjum við yfirtöku ríkisins á þjónustunni. Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir í samtali við ruv.is að heilbrigðisráðuneytið hafi fallist á að starfsmennirnir haldi réttindum sínum.

Taka við öllum nema framkvæmdastjórunum

„Við sem sagt áttum fund í gær; Fjarðabyggð og Vestmannaeyjabær með heilbrigðisráðuneytinu og þar var okkur tilkynnt að heilbrigðisráðherra hefði samþykkt að taka yfir alla starfsmenn heimilanna eða að þeir myndu fara á milli aðila. Að undanskildum framkvæmdastjórum hvort heimilis um sig. Þannig að vonandi fara menn að sjá til lands í þessu máli. Starfsmenn halda sínum kjörum og réttindum og færast yfir. Lög um aðilaskipti eru reyndar ekki virkjuð en viðkomandi heilbrigðisstofnanir taka við starfsmönnunum með sínum réttindum yfir,“ segir Jón Björn.

Viðræðum ekki lokið og enn standa atriði út af borðinu

Vestmannaeyjar og Fjarðabyggð voru í hópi þeirra sveitarfélaga sem sögðu upp samningum um rekstur hjúkrunarheimila en enn á eftir að koma í ljós hvernig fjárhagslegur viðskilnaður verður við heimilin. Á meðan allt stefndi í að segja þyrfti fólkinu upp hefðu sveitarfélögin  þurft að greiða út orlof og mögulega uppsagnarfrest eftir atvikum. „Það er það sem við erum að ræða, það eru ýmis slík mál en við auðvitað erum ánægð að hafa fengið þessi skilaboð. Það er það sem við höfum lagt aðal áherslu á; að þetta gerst með sem bestum hætti fyrir heimilisfólk og starfsmenn þessara heimila,“ segir Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.