Eygló opnar fyrir ljósleiðara í Áshamri og Bessahrauni

Í gær sendi Eygló fjarskiptafyrirtækjunum lista yfir þau hús í Áshamri og Bessahrauni sem eru nú tengd ljósleiðaraneti Eygló, þetta kemur fram í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ. Íbúar eftirtalinna húsa í Áshamri og Bessahrauni geta nú haft samband við sína þjónustuaðila og kannað hvort að þeir séu ekki tilbúnir með ljósleiðaratengingu fyrir þá.

Áshamar 17, 19, 23, 25, 29, 33, 35, 41, 43, 45, 47, 49, 51, 53, 55
Bessahraun 1A, 1B, 3A, 3B, 4, 5, 8, 9A, 9B, 10, 11A, 11B, 13, 12, 14, 15, 16, 18, 22, 24

Eygló ehf. mun reka ljósleiðarann sjálfann sem er grunnstoð kerfisins en fjarskiptafélögin koma með þann búnað sem til þarf. Sala inn á kerfið er í höndum þeirra þjónustuveitna sem selja inn á kerfi Mílu og Ljósleiðarans (Gagnaveitan). Einnig er Tölvun ehf í Vestmannaeyjum komið inn með sinn búnað. Rétt er að taka það fram að Eygló ehf. sinnir einungis þessum þremur fjarskiptafélögum sem samið hafa við félagið. Öll notendaþjónusta og sala er í höndum fjarksiptafélaga á endursölumarkaði.

Nýjustu fréttir

Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.