Eyjalistinn býður fram til bæjarstjórnar
Eyjalistinn býður nú fram í fyrsta skipti til Bæjarstjórnar Vestmannaeyja undir listabókstafnum E við bæjarstjórnarkosningarnar hinn 31. maí 2014. Eyjalistinn er félag fólks úr Bjartri framtíð, Framsóknarflokki, Samfylkingu, Vinstri hreyfingunni- grænu framboði og að auki óflokksbundnum og óháðum kjósendum. Allir sem að Eyjalistanum standa eiga það sameiginlegt að vilja vinna að bættum hag Vestmannaeyja með sérstakri áherslu á jöfnuð og samvinnu á öllum sviðum. Hagsmunir heildarinnar verður það viðfangsefni sem listinn mun hafa að leiðarljósi.
Framboðslisti Eyjalistans verður kynntur um mánaðamótin mars- apríl en nú þegar er hafin öflug og opin málefnavinna til undirbúnings kosninganna. Sú málefnavinna heldur áfram fram að kosningum og verður stefnuskrá Eyjalistans birt þegar nær þeim dregur.
Á almennum félagsfundi 22. mars var rætt um ýmis hagsmunamál Vestmannaeyja og m.a. var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Almennur fundur Eyjalistans haldinn í Arnardrangi 22.3.2014 lýsir yfir þungum áhyggjum vegna stöðu samgöngumála í Vestmannaeyjum og krefst þess að gegngið verði til samninga án frekari tafa. Jafnframt lýsir fundurinn yfir stuðningi við baráttu launafólks fyrir bættum og mannsæmandi kjörum.
Fyrir hönd stjórnar
Jónatan G. Jónsson

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.