Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Framboðslisti Eyjalistans í bæjarstjórnarkosningunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Það er mikill kraftur og eftirvænting í okkur hjá Eyjalistanum þessa dagana. Við fögnum því að opna í dag nýja og glæsilega heimasíðu okkar, Eyjalistinn.is, þar sem hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um listann okkar og framtíðarsýn.

Samhliða opnuninni birtum við stefnuskrá okkar fyrir komandi kjörtímabil í heild sinni. Stefnuskráin okkar er afrakstur mikillar samvinnu og einlægs vilja til að gera góðan bæ enn betri. Við hvetjum alla Eyjamenn til að kíkja á vefinn, glugga í málefnin og sjá hvað við höfum fram að færa fyrir samfélagið okkar.

Hátíðarstemning 1. maí: Fjölskyldudagur á Stakkagerðistúni. Við viljum nýta þennan áfanga og bjóða ykkur öll hjartanlega velkomin á fjölskyldudag Eyjalistans á Stakkagerðistúni þann 1. maí! Það er fátt skemmtilegra en að sjá líf og gleði í miðbænum og við hlökkum til að eiga góða stund saman í hjarta Eyjanna. Í kjölfarið hvetjum við fólk til að fjölmenna í 1.maí kaffi Drífanda í Akóges sem hefst kl. 14.

Á túninu verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna:

Hoppukastalar fyrir hressa krakka.

Andlitsmálun sem lífgar upp á daginn.

Candyfloss fyrir sælkera á öllum aldri.

Góð samvera og spjall við okkur frambjóðendurna.

Við hvetjum ykkur til að mæta með bros á vör og njóta dagsins með okkur. Hlökkum til að sjá ykkur, segir i tilkynningu Eyjalistans.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.