Grindvíkingar slógu ÍBV út úr Mjólkurbikarnum á Hásteinsvelli í dag. ÍBV komst yfir í leiknum með marki frá Alex Frey Hilmarssyni á 13. mínútu, en gestirnir jöfnuðu á 29. mínútu með marki frá Eric Vales, sem var síðan rekinn af velli á 42. mínútu.
Grindvíkingar léku því manni færri það sem eftir lifði leiks en það kom ekki að sök því þeir tryggðu sér sigurinn á lokamínútum leiksins. Hjörvar Daði Arnarsson, markvörður ÍBV varði þá vítaspyrnu Einars Karls Ingvasonar sem og fyrsta frákastið en Josip Krznaric fylgdi að lokum á eftir og skoraði sigurmarkið í leiknum.
Eyjamenn geta því einbeitt sér að Lengjudeildinni sem hefst 1. maí. ÍBV leikur sinn fyrsta leik í deildinni þann 4. maí, en þá mæta þeir Dalvík/Reyni á útivelli.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.