Fasteignaverð tvöfaldast í Eyjum
Fast­eigna­verð í Vest­manna­eyj­um hef­ur rokið upp á síðustu sjö árum. �?egar litið er á þróun fast­eigna­verðs utan höfuðborg­ar­svæðis­ins eru Vest­manna­eyj­ar al­ger­lega í sér­flokki þar sem verðið hef­ur tvö­fald­ast á síðastliðnum sjö árum. Fer­metra­verð á Ak­ur­eyri er um 75% af fer­metra­verðinu í Reykja­vík. �?etta kem­ur fram í Hag­sjá Hag­fræðideild­ar Lands­bank­ans þar sem litið er á stöðuna á fast­eigna­markaðnum utan höfuðborg­ar­svæðis­ins. �?ar eru viðskipti að jafnaði mun strjálli og erfiðara er því að fá raun­veru­leg­ar vís­bend­ing­ar um verðþróun. Strjál viðskipti leiða til þess að sveifl­ur í mánaðarleg­um verðmæl­ing­um eru mun meiri en á höfuðborg­ar­svæðinu. Um það bil 64% lands­manna búa á höfuðborg­ar­svæðinu en tæp­lega helm­ing­ur íbúa utan höfuðborg­ar­svæðis­ins býr í 6 stærstu bæj­un­um, eða um 17% lands­manna. Rúm­lega 80% lands­manna býr því á höfuðborg­ar­svæðinu og í 6 stærstu bæj­un­um.
Verðlækk­un í Árborg
Frá þriðja árs­fjórðungi 2008 til fjórða árs­fjórðungs 2015 hef­ur fast­eigna­verð lækkað í Árborg og er nær óbreytt í Reykja­nes­bæ. Á hinum stöðunum, þ.e. á höfuðborg­ar­svæðinu, á Ak­ur­eyri, í Fjarðabyggð og á Akra­nesi hef­ur verðið hækkað með svipuðum hætti, þó ei­lítið minna í Fjarðabyggð. �?ess­ar töl­ur sýna að verðþró­un­in á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur í stór­um drátt­um ekki verið mjög frá­brugðin því sem ger­ist víða ann­arsstaðar. Fer­metra­verð er hæst á Ak­ur­eyri sé litið til lands­byggðar­inn­ar. mbl.is/�??Skapti Hall­gríms­son
Und­ir lok síðasta árs var fer­metra­verð alls hús­næðis í þess­um bæj­um hæst 232 þúsund krón­ur á Ak­ur­eyri og lægst í Fjarðabyggð, eða um 125 þúsund krón­ur.
�?á hafa fjór­ir bæir fylgst nokkuð vel að í fer­metra­verði síðustu miss­eri og eru á svipuðu róli nú, þetta eru Reykja­nes­bær, Árborg, Akra­nes og Vest­manna­eyj­ar. �?tla má að kostnaður við ný­bygg­ing­ar sé ná­lægt 300 þúsund krón­ur á fer­metr­ann og er það mun hærra en sölu­verð víðast hvar.
Sé litið á fast­eigna­verð á lands­byggðinni sem hlut­fall af verðinu á höfuðborg­ar­svæðinu má sjá að fer­metra­verðið á Ak­ur­eyri var um 75% af verðinu í Reykja­vík und­ir lok síðasta árs.
Sam­kvæmt sömu aðferð var fer­metra­verð í hinum bæj­un­um tölu­vert lægra en samt nokkuð svipað í flest­um þeirra, eða ríf­lega helm­ing­ur þess sem ger­ist í Reykja­vík. Verð í Fjarðabyggð var ei­lítið lægra.
Hærra fer­metra­verð á sér­býli á lands­byggðinni
Í Reykja­vík var fer­metra­verð fjöl­býl­is um 18% hærra en á sér­býli á ár­inu 2015. �?essu er allt öðru vísi farið í stærri bæj­um úti á landi. �?að er ein­ung­is í Fjarðabyggð sem fjöl­býlið er veru­lega dýr­ara, eða 19%. Fjöl­býli er 4% dýr­ara á Ak­ur­eyri en í hinum bæj­un­um er fer­metra­verð á sér­býli hærra en á fjöl­býli, mest 9% hærra á Akra­nesi. Niðurstaðan er því sú að verðþróun í flest­um bæj­anna er mjög sam­bæri­leg við höfuðborg­ar­svæðið. Fer­metra­verð á Ak­ur­eyri er um 75% af því sem er í Reykja­vík en í flest­um bæj­anna er það u.þ.b. helm­ing­ur af verði í Reykja­vík.
Tekið af vef mbl.is

Nýjustu fréttir

Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.