Fjallað um sögu mormóna í golfskálanum
Laugardaginn næsta, 29. júní kl. 11-13 verður boðið upp á notalega stund í golfskálanum. Þar verður unnt að fá súpu og kaffi gegn vægu verði og hlýða á erindi um örlög og ævi sumra þeirra Vestmannaeyinga sem fluttust til Utah á síðari hluta 19. aldar. Tilefnið er að í ár eru liðin 160 ár frá því mormónar stofnuðu kirkju sína á Íslandi, nánar tiltekið í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum 19. júní 1853. Meðal gesta er Mark Geslison sonarsonur Sigmundar Gíslasonar úr Jónshúsi og Sveinsínu Árnadóttur frá Löndum er bæði yfirgáfu Vestmannaeyjar börn að aldri ásamt foreldrum sínum.

Nýjustu fréttir

Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.