Fjöldi fólks fylgdist með æfingu B-liðsins í gærkvöldi
Fréttatilkynning B-liðsins í gær vakti mikil viðbrögð og greinilega að mikill áhugi er á leiknum. Mikill fjöldi áhorfenda mætti einnig á æfingu liðsins í gærkvöldi til að dást að leikmönnum og vildu nokkrir merkja sér sæti fyrir leikinn á laugardag. Starfsmenn Íþróttamiðstöðvarinnar gripu þó í taumana og fjarlægðu allar merkingar. Allir munu því sitja við sama borð á laugardag þegar húsið verður opnað.
Valsmenn léku í gær í Olísdeildinni og unnu nokkuð sannfærandi sigur á Aftureldingu í Mosfellsbænum. �?li Stef var ekki með Val í leiknum og herma heimildir að hann hafi verið að hvíla sig fyrir átökin á morgun.
Miðasalan á leikinn, sem hefst kl. 14 á morgun laugardag, heldur áfram í dag á Hárstofu Viktors og hjá leikmönnum B-liðsins.
Áfram ÍBV-B, alltaf, allsstaðar!
Ps. Frekari tíðanda af leikmannamálum o.fl. má mögulega vænta með kvöldinu

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.