Fjórar ferðir nú endurgreiddar vegna heilbrigðisþjónustu
Vél Ernis á Vestmannaeyjaflugvelli. Eyjar.net/Óskar Pétur Friðriksson

Almennur réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári. Þetta segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þessa efnis tók gildi 1. júlí. Í byrjun þessa árs var rétturinn aukinn úr tveimur ferðum í þrjár og nú hefur fjórða ferðin bæst við.

„Þetta er mikilvægt byggðamál sem styður jafnframt það grundvallarmarkmið heilbrigðisstefnu að bæta og jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag“ segir Willum Þór Þórsson.

Ferlin einfölduð

Samhliða fjölgun endurgreiddra ferða hefur umsóknarferli Sjúkratrygginga í tengslum við endurgreiðslu ferðakostnaðar verið einfaldað. Til þessa hefur þurft að skila inn læknisvottorði vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar en með breytingunni er sú skylda felld niður, svo nú þarf ekki læknisvottorð fyrir endurgreiðslu kostnaðar vegna fjögurra ferða á ári. Sjúkratryggðir einstaklingar þurfa nú eingöngu að leggja fram kvittanir fyrir ferðakostnaði til Sjúkratrygginga og staðfestingu á komu ef um komu á sjúkrahús eða heilbrigðisstofnun er um að ræða. Áfram þarf þó að skila inn læknisvottorði þegar um er að ræða ítrekaðar ferðir vegna alvarlegra sjúkdóma.

Réttur til endurgreiðslu ferðakostnaðar nær til sjúkratryggðra einstaklinga vegna nauðsynlegra ferða eftir þjónustu sem ekki er fyrir hendi í heimabyggð og vegalengd milli staða er 20 km. eða lengri.

Nýjustu fréttir

Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Evrópuhreyfingin: 105.339 Íslendingar sögðu já
Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Tæknin getur einfaldað námið til muna – fyrirlestur fyrir foreldra í Höllinni
Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.