Mjög sannfærandi sigur á FH

Kvennalið ÍBV vann í dag mjög sannfærandi sigur á FH í Olísdeildinni en liðin áttust við í Eyjum. ÍBV tók strax forystuna í leiknum og þegar fyrri hálfleikur var rétt hálfnaður, var staðan orðin 9:3 fyrir ÍBV. Munurinn hélt áfram að aukast út leikinn og lokatölur urðu 33:20 eftir að staðan í hálfleik hafði verið […]

Knattspyrnusumarið gert upp

Lokahóf knattspyrnufólks ÍBV fór fram í Höllinni í gærkvöldi með bravor. Sigursveinn �?órðarson, formaður ÍBV fór yfir knattspyrnusumarið þar sem skiptist á skin og skúrir. Páll Magnússon var röggsamur veislustjóri kvöldsins, hann gat þess að um klukkan fjögur í gær, þegar leik ÍBV og Fjölnis lauk, hafi hann verið dapur, en eftir að hafa hlustað […]

Sigurður Ragnar hættur með ÍBV

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs ÍBV er hættur með liðið. �?etta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍBV en þar kemur fram að Sigurður Ragnar hafi óskað eftir að vera leystur undan störfum vegna fjölskylduaðstæðna og hafi félagið orðið við þeirri beiðni. Fréttatilkynninguna má lesa í heild hér að neðan: Sigurður Ragnar Eyjólfsson óskaði í vikunni […]

Tap og Glenn missti af gullskónum

Karlalið ÍBV tapaði síðasta leik sínum í Pepsídeildinni í ár en liðið lá fyrir Fjölni í Grafarvogi 3:0. Á sama tíma skoraði Gary Martin þrennu í sigri KR á �?ór í Vesturbænum og Martin náði því að nappa gullskónum af Jonathan Glenn, framherja ÍBV sem hefur verið efstur á markalistanum síðustu vikur en Glenn fór […]

Ljósmyndasýning Harðar Sigurgeirssonar í Einarsstofu

�?að er tilvalið að líta á ljósmyndir Harðar Sigurgeirssonar í Einarsstofu um helgina, en opið verður í Einarstofu laugardag og sunnudag kl. 13-16. Friðrik, sonur Harðar, verður á staðnum og kaffi á könnunni. Að öðru leyti verður opið á venjubundnum opnunartíma Safnahúss, 10-18 mán.-fim. og 10-17 á föstudögum. Sýningin stendur til 16. okt. Með fréttinni […]

Vill færa málefni aldraðra til sveitarfélaganna

Félags- og húsnæðismálaráðherra, segir sína skoðun að flytja eigi ábyrgð á þjónustu við aldraða til sveitarfélaga, rétt eins og málefni fatlaðra og menntun á grunnskólastigi. Samþætting heimaþjónustu er viðfangsefni norrænnar ráðstefnu sem nú stendur yfir í Reykjavík. Ráðstefnan hófst í morgun með ávarpi Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hún ræddi í upphafi um fjölgun aldraðra […]

Bryggjudagurinn er á morgun

Á morgun, laugardag verður hinn árlegi Bryggjudagur ÍBV íþróttafélags og Böddabita, á Vigtartorginu og í Vigtarhúsinu. �?ar verður boðið uppá fjölbreytt úrval fisktegunda og nú verður hægt að fá siginn fisk, þorsk, þorskhnakka, ýsu, skötusel og margt fleira. Dorgkeppni verður fyrir börnin í umsjón Sigurðar Bragasonar og er skráning kl. 10.30 á Vigtartorginu en veiði […]

Endahnútur á sameiningu Ufsabergs og Vinnslustöðvar

Á hluthafafundi í Vinnslustöðinni hf. (VSV) miðvikudaginn næsta, 8. október liggja fyrir tvær tillögur stjórnar. Báðar lúta að sameiningu VSV og Ufsabergs-útgerðar ehf. Fyrri tillagan er að fundurinn samþykki samruna Ufsabergs-útgerðar ehf. og Vinnslustöðvarinnar hf. þar sem Vinnslustöðin hf. verður yfirtökufélagið. Seinni tillagan er að fundurinn samþykki að hækka hlutafé Vinnslustöðvarinnar hf. um 611.067 evrur. […]

Glóðvolgum fréttum úr sólkerfinu er frestað

Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja ætlaði að bjóða uppá áhugaverðan fund í hádeginu í dag, en þar sem ekki var flogið í morgun, frestast þessi fyrirhugaði fundur um óákveðinn tíma. (meira…)

Palli Helga kom færandi hendi í Sagnheima

Í síðustu viku kom Páll Helgason ferðafrömuður með merka hluti tengda Hótel Berg til varðveislu í Sagnheimum, byggðasafni. Um er að ræða ljósmynd af Hóteli Berg frá um 1915 og forláta postulínskanna merkt Hótel Berg. Hlutir þessir berast safninu frá Sigurði Karlssyni hönnuði og Hanný Ingu Karlsdóttur til minningar um móður þeirra Sigurbjörgu Ingimundardóttur ekkju […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.