Fólk farið að láta verðmiðann stöðva sig í ferðalögum
Samgo�?ngumálin eru að verða að einum rándýrum og leiðinlegum farsa og eru á svakalega lágu plani. �?að kostar orðið annan handlegginn að sigla með Herjólfi og enn er verið að hækka fargjo�?ld samkvæmt einhverri ferjuvísito�?lu, sem virðist vera í besta falli vitlaus miðað við olíuverð. Kostnaður venjulegrar fjo�?lskyldu við það að skreppa upp á land er orðinn fáránlega hár. Og er fólk farið að láta verðmiðann sto�?ðva sig í ferðalo�?gum upp á fastalandið og fólk kýs fremur að skjótast erlendis en að heimsækja ættingja til Eyja. Bæði er þá um að kenna verðinu og þeirri staðreynd að eftir opnun Landeyjahafnar vill fólk helst ekki sigla til �?orlákshafnar. Og skil ég það vel.
�?essi blessaða Landeyjaho�?fn virðist ekki virka neitt miðað við það sem sagt var í upphafi og hrakspár fýlupokanna frá árunum fram að opnun virðast allar vera að ganga eftir. Fræðingarnir hafa haft rangt fyrir sér í flestum efnum og þessi ho�?fn og allt í kringum hana var að mestu gert með rassgatinu.
�?að er varla hægt að benda á einn hlut varðandi ho�?fnina og allt sem henni tengist sem virðist hafa tekist með einhverjum sóma. Nema jú kannski uppgræðslan á sandinum.
Garðarnir eru greinilega of litlir og hlífa hafnarmynninu nánast ekki neitt fyrir grunnbrotinu. Ho�?fnin sjálf er alltof lítil og þro�?ng svo að það er varla hægt að snúa skipinu þarna inni. Húsið sem svo var byggt sem afgreiðsla og brottfararsalur er byggt alltof lítið, það sést best á því að miðaafgreiðslan hefur verið færð inní bílskúr.
Aðkoman að húsinu er ho�?rmung og varla gert ráð fyrir því að fleiri en fjórir bílar stoppi þar til að taka upp farþega hvað þá heilu rúturnar. Bílastæðin eru of fá og algerlega óvarin fyrir sandfoki en það vissu það allir að sandfok væri mikið vandamál þarna og mundi eyðileggja o�?kutæki sem stæðu þarna. Og nú sex árum eftir opnun eru málefni hafnarinnar nákvæmlega eins og þau voru 20. júlí 2010 fyrir utan að það er kominn útsýnis- pallur.
En ljósi punkturinn í þessu er sá að Flugfélagið Ernir hefur staðið sig með sóma en ég vil sjá ríkisstyrkinn aftur í flugið til að halda miðaverði niðri eins og var fyrir tilkomu Landeyjahafnar. En það var afnumið því við ætluðum að hætta að fljúga og sigla um Landeyjaho�?fn 350 daga á ári. �?að hefur ekki alveg staðist en nú er sagt að rafmagnsbáturinn með o�?fgastjórnhæfnina muni geta siglt þangað 350 daga á ári. Sem við vitum alveg að er bara brandari.
Krafan er einfaldlega sú að við fáum ódýrari og o�?ruggari samgo�?ngur bæði á sjó og í lofti. Hvort hægt verði að nota Landeyjaho�?fn til frambúðar veit ég ekkert um en miðað við undanfarin ár þá virðist hún bara vera rándýrt klúður sem hefur litlu skilað o�?ðru en fo�?lskum
væntingum. Og nú er ég búinn að koma mér í leiðindapúka hópinn sem ekkert veit.
Í síðasta tölublaði Eyjafrétta var rætt við yngri kynslóðina um bæjarmálin í Eyjum. Hægt er að lesa viðtalið við �?orbjörn Víglundsson í heild sinni ásamt skoðunum annarra ungra Eyjamanna um hin ýmsu bæjarmál í nýjasta blaðinu. Ef þú ert ekki áskrifandi nú þegar, er hægt að gerast áskrifandi hér.

Nýjustu fréttir

Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.