Framtak Björgunarfélags Vestmannaeyja lagði grunn að Landhelgisgæslu Íslands
Vestmannaeyjar áttu að vera í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar sem er í dag – Af því varð ekki - Þökk sé Paul Watson
Þrír höfðingjar. Gunnar Júlíusson og Viktor Jónsson aðstoðuðu Kára við uppsetningu sýningarinnar. Mynd Ómar.

Í dag eru liðin 100 ár frá stofnun Landhelgisgæslu Íslands. Fáir gera sér þó grein fyrir því að upphaf sögu hennar á rætur sínar í Vestmannaeyjum, þar sem framsýni og framtakssemi Björgunarfélags Vestmannaeyja lagði grunn að fyrstu skipulögðu björgunar- og strandgæslu þjóðarinnar. Í tilefni af aldarafmælinu er rifjuð upp þessi merka saga, sem og opnun sýningar á ómetanlegum gripum úr Vestmannaeyja-Þór, skipinu sem markaði upphaf Landhelgisgæslunnar.

Landhelgisgæsla Íslands fagnar í dag 100 ára afmæli sínu. Þótt hátíðardagskrá sem fyrirhuguð var í Vestmannaeyjum hafi fallið niður vegna verkefna varðskipsins Þórs við gæslu hvalveiðiskipa, gegna Vestmannaeyjar engu að síður lykilhlutverki í sögu stofnunarinnar.

Rætur Landhelgisgæslunnar liggja í framtaki Björgunarfélags Vestmannaeyja sem keypti árið 1920 danskan togara, Thor, breytti honum í björgunar- og eftirlitsskip og nefndi Þór. Hinn 1. júlí 1926 keypti ríkissjóður skipið af félaginu og með þeim kaupum var lagður grunnur að Landhelgisgæslu Íslands. Sama dag kom nýr Óðinn til landsins.

Afmælishátíð í Vestmannaeyjum átti að fara fram í dag með komu varðskipsins Þórs og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti, og dómsmálaráðherra áttu að sækja dagskrána. Henni var hins vegar frestað þegar Þór var kallaður til gæslu hvalveiðiskipa Hvals hf. vegna aðgerða skipsins Bandero, sem tengist hvalaverndarsinnanum Paul Watson.

 

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Gæslunnar við komu Þórs til Vestmannaeyja þann 26. október 2011. Mynd Óskar Pétur.

 

Vestmannaeyjar valdar á ný

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar og fyrrverandi sýslumaður í Vestmannaeyjum, hefur áður heiðrað Eyjar með þessum hætti. Árið 2011 ákvað hann að nýtt varðskip Þór kæmi fyrst til Vestmannaeyja eftir afhendingu þess frá Chile. Nú voru Eyjar aftur valdar sem vettvangur stærsta viðburðar í sögu Landhelgisgæslunnar, þótt dagskráin hafi að þessu sinni ekki getað farið fram.

Frá árinu 1920 hafa fjögur varðskip borið nafnið Þór. Núverandi varðskip, sem tekið var í notkun árið 2011, gegnir lykilhlutverki í leit, björgun og öryggisgæslu á hafsvæðinu umhverfis Ísland.

Þegar Landhelgisgæsla Íslands fagnar aldarafmæli sínu er því jafnframt minnst þess að upphaf hennar á rætur sínar að rekja til Vestmannaeyja og framsýni Björgunarfélags Vestmannaeyja.

Ómetanlegir gripir úr Vestmannaeyja-Þór

Í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands var opnuð sýning í Sagnheimum með munum úr Vestmannaeyja-Þór, sem eru í vörslu safnsins. Átti opnun sýningarinnar og koma Gæslunnar að marka upphaf Goslokahátíðar sem sett verður á morgun.

Meðal merkustu gripa er skipsklukka úr Þór sem Friðrik Ólafsson, fyrrverandi skipherra á varðskipinu, gaf Byggðarsafni Vestmannaeyja. Friðrik bjargaði klukkunni þegar Þór strandaði á Sölvabakkaskerjum undan Blönduósi 21. desember 1929.

Með gjöfinni lét hann þau orð fylgja að klukkan skyldi minna Eyjamenn á hið mikla framtak þegar Björgunarfélag Vestmannaeyja keypti fyrsta björgunar- og varðskip þjóðarinnar árið 1920 og lagði grunn að síðarri Landhelgisgæslu Íslands.

Á sýningunni má einnig sjá nafnstafi skipsins, sem teknir voru af því á strandstað, og bjöllu með ártalinu 1899, en það ár var skipið smíðað í Englandi undir nafninu Thor. Síðar keypti Björgunarfélag Vestmannaeyja skipið og markaði það upphaf nýs kafla í íslenskri björgunar- og strandgæslusögu.

Nánar í Eyjafréttum á morgun.

 

 

Nýjustu fréttir

Framtak Björgunarfélags Vestmannaeyja lagði grunn að Landhelgisgæslu Íslands
Ísfélagið kemur að nýrri lausn til að verjast laxalúsinni
Goslok: dagskrá fimmtudags
Skráning í Söngvakeppni barna hefst á morgun
Ottó N. Þorláksson dreginn til hafnar eftir vélarbilun
Bergey með blandaðan afla
Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn
Nýr áfangi í rannsóknum Eyjaganga að hefjast
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.