Fréttastjóri DV er örugglega fínn peyi
Nú fyrir helgi skrifaði fréttastjóri DV hvassan pistil þar sem hann sendir mér og Vestmannaeyjum tóninn (sjá hér – http://www.dv.is/blogg/ingi-freyr-vilhjalmsson/2014/7/4/4264-thjodrikid-vestmannaeyjar/). �?ar segir hann að það sé ekkert sérstakt við Vestmannaeyjar. �?ær séu menningarlegt núll og við of fámenn til að vera að gera okkur svona breið. Við séum samt ágæt í að veiða fisk.
�?g þekki ekki fréttastjórann. Held að hann sé fínn peyi. �?ess vegna finn ég til með honum að fara svona villu vegar. Auðvitað eru Vestmannaeyjar sérstakar. Hvorki betri né verri en aðrir sambærilegir staðir, en sérstakar. Á sama hátt þykir mér Eyjamenn sérstakir. Hvorki betri né verri en aðrir, en sérstakir. Orð mín þykja fréttastjóranum og skoðanasystkinum hans ekki merkileg. Svo vísað sé í pistilinn þá segir hann orð mín ala á heimsku og ég tali eins og ég sé vanviti. Svo líkir hann mér við nasista.
Orð mín mega sín því lítils. �?g er líka bara af landsbyggðinni og ætti sjálfsagt að vera að veiða fisk �?? við gerum það þó vel samkvæmt skrifum fréttastjórans. Annað fólk er þó vonandi í meiri metum. Ef til vill getur einhver góður og vandaður maður sannfært Inga Frey um að Vestmannaeyjar séu sérstakar.
�?ess vegna langar mig að að gefa Baltasar Kormáki orðið. Hann er ekki bara framúrskarandi listamaður heldur vandaður og góður maður, eftir því sem ég þekki hann. �?annig er hann vonandi betur til þess fallin að meta þetta hlutlægt en ég. Baltasar svaraði einmitt fullyrðingum fréttastjórans löngu áður en hann skrifaði pistilinn.
�?egar Baltasar tók við Eddu sem leikstjóri ársins sagði hann þetta um Vestmannaeyjar og Eyjamenn:
�??Fyrst og fremst langar mig að senda Vestmannaeyingum kveðju. �?að var frábært að gera þessa mynd. Höfðingsskapur, gestristni og það er eitthvað sérstakt í kakter Vestmannaeyinga sem að hrífur mig alveg rosalega. �?etta er eins og Íslendingur sem hefur verið tálgaður, það er bara það besta eftir hjá honum.”
Nú má vel vera að Ingi Freyr telji Baltasar líka vera eins og nasisti sem talar eins og vanviti. Hann dvelur jú löngum stundum á heimili þeirra hjóna á Hofi í Skagafirði og því með öllu óvíst að fréttastjórinn telji hann marktækan í umræðu um landsbyggðina.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.