Gandí VE kominn til heimahafnar
Gandí VE 171, nýtt skip Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum kom til heimahafnar í fyrsta sinn í kvöld. Um er að ræða vinnsluskip á bæði uppsjávarafla og grálúðu en einnig er hægt að gera skipið út á ísfisk. Talsverður fjöldi fólks tók á móti hinu nýja skipi Vinnslustöðvarinnar í kvöld. Skipið er 57 metra langt, 13 metra breitt og aðalvélin er 3300 hestöfl. Frystigeta um borð á uppsjávarfiski er 100 tonn. Skipið var smíðað 1986 en mikið endurnýjað 2006 og er í góðu standi. Skipið hét áður Rex HF 24 og var í eigu Sjávarblóms í Hafnarfirði.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.