Guðlaugssundið á morgun
Á morgun laugardaginn 12. mars verður Guðlaugssundið frá klukkan 08-12 í sundlaug Vestmannaeyja.
�?að varð þann 11.mars 1984 að Hellisey VE fórst austan við Eyjar og með henni fórust fjórir menn. Stýrimaðurinn Guðlaugur Friðþórsson vann það ótrúlega afrek að synda þrjár mílur í land. Kom hann að landi við Nýja hraunið og varð að ganga yfir úfið hraunið og milli fella áður en hann gat látið vita af sér. Nú eru 32 ár frá Helliseyjarsundinu en afreks Guðlaugs hefur verið minnst árlega síðan 2001 með svokölluðu Guðlaugssundi í sundlaug Íþróttamiðstöðvarinnar. Alls eru syntir 6 kílómetrar, alls 120 ferðir fram og til baka. Friðrik Ásmundsson, fyrrum skólastjóri Stýrimannaskóla Vestmannaeyja sem hefur staðið að sundinu öll þess ár, ákvað í fyrra að láta staðar numið og því hafa nýjir menn tekið við keflinu, þeir Allan Friðrik Allisson og Sveinbjörn Guðmundsson.
Sundlaugin er lokuð á meðan Guðlaugssundið á sér stað en útisvæðið erður opið.
Byrjað verður að hita upp laugina aftur eftir sundið og verður hún komin í 32°C á sunnudag.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.