Hagnaðurinn minnkar
DSC_7907
Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Hagnaður fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði á milli áranna 2022 og 2023. Frá árinu 2022 lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 37% í 36,5%, hækkaði í fiskveiðum úr 24,6% árið 2022 í 24,9% af tekjum árið 2023 og lækkaði í fiskvinnslu úr 21,1% í 18,3%. Þetta kemur fram í hagtíðind­um Hag­stofu Íslands.

Hreinn hagnaður (EBT) þessara fyrirtækja samkvæmt árgreiðsluaðferð dróst saman á milli ára og nam þannig 24% árið 2023 samanborið við 26,3% árið 2022. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn tæpum 73 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð rúmum 38 milljörðum króna. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð nam hagnaðurinn rúmum 70 milljörðum króna eða 23,2% af tekjum árið 2023 borið saman við 27,3% árið áður.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir í sjávarútvegi í árslok 2023 tæpir 1.059 milljarðar króna, heildarskuldir rúmir 554 milljarðar króna og eigið fé rúmir 505 milljarðar króna. Hagtíðindi Hagstofunnar má lesa hér.

Nýjustu fréttir

Hörku skákmót hjá TV á skírdag
Tjaldurinn meðal vorboða í Eyjum
Bæta á aðgengi og fjölga bílastæðum við Kirkjugerði
ÍBV semur við serbneskan framherja
Metár og hagnaður langt yfir áætlun
Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 
Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.