Heldur flatur Heimaklettur og fleiri fletir opnar á föstudag í Safnahúsinu en þar sýnir Árni Vilhjálmsson, myndlistarmaður verk sín. Árni er ekki ókunnugur Eyjum en þær hefur hann heimsótt um árabil, bæði heimsótt vini en líka spilað á Þjóðhátið með hljómsveitinni FM Belfast. „Það er ótrúlegt hve margir sem ég hef kynnst og unnið með, koma frá eða hafa tengingar til Eyja,“ segir Árni kankvís. Hann sýnir í fyrsta sinn í Eyjum, en hann hefur áður haldið einkasýningarnar, m.a. Í Núllinu Allt gerði Guð árið 2021 og Ný umferð árið 2022. Árið 2023 tók hann þátt í útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands í Listasafni Reykjavíkur með verkinu Málarameistari.
Árni hefur um árabil unnið með framsetningu á litum og formum en hefur á síðustu misserum beint sjónum sínum að landslagsverkinu. Hann vísar í Cezanne sem margir telja að hafi haft mikil áhrif á landslagsverk okkar Íslendinga, Cezanne horfði fremur til formsins en ljóssins og áhrifa umhverfisins. Árni segist ekki vera átthagamálari en form litir og flatneskja veki áhuga hans. Hann nálgast viðfangsefnið með ákveðinni íróníu og segir m.a. um verkin sín „að hið fullkomlega misheppnaða landslagsverk skortir alla dýpt og tilfinningu fyrir náttúrunni. Það er ekkert að þykjast vera fjall, grasbali, himinn eða haf. Verkið er form og litir á fleti með nokkur lög af málningu, í ramma á flötum vegg.“
Árni málar aðallega fjöllin sem hann sér út um gluggann sinn eða tengjast æsku hans eins og Snæfellsjökul, Keili og einnig Herðubreið til heiðurs Stórval. Nýlega hefur hann tekið Heimaklett fyrir. Það vakti athygli hans hve mikið form Heimakletts breytist frá ólíkum sjónarhornum. Árni er ekki að gera tilraun til að mála viðfangsefnið eins nákvæmlega og hann getur heldur leggur hann áherslu á form fjallsins. Hann segist ekki mála til að líkja eftir náttúrunni, heldur verður viðfangsefnið að formum á fleti, byggt upp af litum, lögum og einfölduðum línum. „Fjallið verður ekki aðeins mynd af stað, heldur leið til að skoða hvernig við lesum umhverfi okkar — hvernig náttúran verður form, hvernig litir fá merkingu og hvernig einfaldur flötur getur samt geymt dýpt,“ útskýrir Árni.

Litir spila stóran þátt í verkum Árna, hann segir að allir litir séu fallegir í réttu samhengi. Hann hefur skoðað áhrif tískulita, þar sem í vísað er til vinsælla lita með misþekkt nöfn við val á málningu innanhúss jafnt sem úti. Árni vefur þessum litum inn til að tengja saman náttúru og hversdagslíf og skapa ósýnilega dýpt í landslaginu. Hann hefur m.a. stuðst við litakort Slippfélagsins en þar má nefna brynjubleikan, sigvaldagulan- og bláan en síðast en ekki síst talar Árni um Árnavil-grænan. „Hann er þunnur og illþekjanlegur og það þarf mörg lög til þess að hann þekji almennilega. Árnavilgrænu fletirnir eru einu fletirnir í verkunum þar sem ákvarðanatökur í pensilstrokunum sjást almennilega. Það mætti segja að þetta séu sálræni hluti verksins,“ segir Árni að lokum.
Árni útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2023 og hefur á síðustu árum unnið þvert á listform; við myndlist, gjörninga, tónlist og sviðsverk. Samhliða myndlistarstarfinu hefur Árni starfað með leikhópnum Kriðpleir frá árinu 2013, þættir sem hafa t.a.m. verið aðgengilegir á RÚV og komið að fjölda sviðsverka og útvarpsleikrita sem höfundur, tónlistarmaður og leikari. Hann hefur einnig gefið út sólóplötuna Slightly Hungry og vinnur nú að plötunni Partly Cloudy, sem hlaut styrk frá Tónlistarmiðstöð. Í Vestmannaeyjum má segja að þessir þræðir í starfi hans: myndlistin, tónlistin, sviðið og leikurinn mætist með leik með formi og liti. Sýningin opnar kl. 16 á föstudag í Pálsstofu í Safnahúsi Vestmannaeyja og verður Árni einnig við bæði á laugardag og sunnudag á milli klukkan 12 og 16.