Hlakkaði til að drekka í sig Eyjamenninguna
Kristmundur: Þetta er búið að vera alveg tjúllað ár og búið að ganga ógeðslega vel.

„Línurnar eru farnar að skýrast og það er búið að fara frekar mikið púður í þetta,“ segir rapparinn Kristmundur Axel um undirbúninginn fyrir helgina, en hann stígur á stokk í Herjólfsdal á aðfaranótt laugardags. Kristmundur hélt fyrstu tónleikana sína í vor í Iðnó í Reykjavík sem seldust upp og hefur gefið út þrjár smáskífur það sem af er ári. Þetta er í fyrsta skiptið sem Kristmundur kemur alveg sjálfur fram á Þjóðhátíð en árið 2012 mætti hann 18 ára í dalinn með hljómsveitinni Bláum Ópal sem sama ár hafnaði í 2. sæti Söngvakeppni Sjónvarpsins en vann þó símakosninguna með yfirburðum.

„Ég man samt ekki nógu vel eftir þeirri Þjóðhátíð og það var bara eitthvað eitt kvöld, þannig að ég hlakka bara til að sjá dalinn í allri sinni dýrð og sjá allan þennan stemmara. Bara allt í kringum Þjóðhátíð, hvítu tjöldin og þessa eyjamenningu, drekka hana í mig. Ég er langspenntastur fyrir því,“ segir Kristmundur og bætir við að hann eigi eftir að gefa hjarta, líf og sál í flutninginn sinn og hvetur fólk til þess að mæta á dansgólfið.

Hvernig er árið búið að vera og hvað er framundan? „Þetta er búið að vera alveg tjúllað ár og búið að ganga ógeðslega vel. Ég meina, ég fæ auðvitað kallið til að spila á Þjóðhátíð þannig að maður er að gera eitthvað rétt. Annars bara búinn að vera mikið í stúdíóinu og mikið að vinna í tónlistinni og öllu því tengdu, og það er bara nóg framundan. Ég ætla að skella mér í bústað með Þormóði sem er pródúsentinn minn og vera þar í nokkra daga og vonandi leggja einhver drög að plötu og bomba henni út þá einhvern tímann á næsta ári,“ segir Kristmundur að endingu.

Úr þjóðhátíðarblaði Eyjafrétta.

 

 

Nýjustu fréttir

Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.