Höfum lagt áherslu á að gera sem mest úr sem minnstu

Guðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri var nokkuð ánægður með vertíðina þegar blaðamaður heyrði í honum hljóðið. “�?essi vertíð er búin að ganga mjög vel. Við höfum svo sem ekkert verið að moka loðnunni upp úr sjónum, hefðum getað veitt miklu meira en hins vegar erum við ekki með það mikinn kvóta. Við höfum auk þess lagt meiri áherslu á aflaverðmæti, gert sem mest úr sem minnstu og þannig hefur þetta gengið mjög vel. �?g gæti trúað að í heildina yfir vertíðina höfum við veitt um 6000 tonn,” sagði Guðmundur Huginn.

Hann bætir því þó við að þetta hafi verið mikil törn fyrir mannskapinn. “Við fórum fyrsta túrinn 11. janúar þannig að þetta eru um tveggja mánaða stanslaus vinna. En ég er með góðan mannskap hérna um borð sem stendur undir þessu mikla álagi enda væri þetta ekki hægt öðruvísi. �?tli við séum ekki að frysta um 100 tonn af loðnu á sólarhring og svo um 50 tonnum af hrognum.”

Og það gefst ekki mikill tími til að blása úr nös því áætlað er að frystingu verði lokið á morgun og skipið komi þá til löndunar. “Svo förum við á kolmunna á sunnudaginn,” sagði Guðmundur að lokum.

Nýjustu fréttir

Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.