Aglow samvera verður í kvöld, miðvikudaginn 6. mars kl. 19.30 í safnaðarheimili Landakirkju.
Yfirskrift fundarins verður: HORFT TIL PÁSKA, því það styttist í páska. Núna er tími þar sem við skoðum merkingu og innihald krossdauða Jesú Krists. Dauði Krists hefur sætt okkur við Guð og gefið okkur nýtt upphaf. Aðalatriði föstutímans er ekki hvað maður neitar sér um heldur að beina athyglinni að Guði og náunganum.
Í Lúk.9.23 stendur: Og Jesús segir við alla: ,,Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér…“ . Við munum fjalla um efni sem tengist þessum tíma þegar við horfum til páskanna. Guð vill ekki endilega að við þjáum okkur heldur að við lifum fyllra lífi, það er að vera laus við að vera of gagntekin af sjálfum sér, þannig að við getum fagnað yfir sköpun Guðs, fundið til einingar við hana og skynjað líf okkar sem gjöf sem okkur er gefin til að aðrir fái lifað fyllra lífi. Við getum átt samfélag við Guð og talað við hann og beðið hann um að leiða okkur. ,, Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda“ Sálm. 51.12 Við hlökkum til kvöldsins, fyrst fáum við hressingu og njótum samfélagsins, við syngjum saman, biðjum og hlustum á uppörvandi efni.
Allar konur velkomnar. Gleðilega páskahátíð, segir í tilkynningu frá stjórn Aglow í Eyjum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.