Hvetur bæjarbúa til að gefa smákökur
Jóhanna Finnbogadóttir vill gera sitt til að hjálpa þeim sem eiga um sárt að binda vegna efnahagsástandsins í landinu. Aldrei hafa eins margir leitað á náðir hjálparsamtaka eftir mat og öðrum nauðsynjum. Hún hvetur alla bæjarbúa sem eru aflögu­færir til að gefa smákökur sem þeir annað hvort baka sjálfir eða kaupa í bakaríum Eyjanna og gefa til Fjölskylduhjálparinnar í Reykjavík. Tekið verður á móti kökunum í Arnardrangi við Hilmisgötu, húsnæði Rauða krossins, í dag, þriðjudaginn 15. desember milli klukk­an 17.00 og 20.00.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.