ÍBV sigraði FH
ÍBV og FH áttust við í Kaplakrika í kvöld í síðustu umferð Olísdeildar karla. Fyrir leikinn hafði ÍBV ekki unnið leik síðan 9. mars en þeir bundu enda á það í kvöld og sigruðu 26-28.
FH var sterk­ara liðið lengst af fyrri hálfleik og hafði um tíma þriggja marka for­skot. Eyja­menn stigu upp undir lok fyrri hálfleiks og héldu áfram uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks. FH skoraði ekki mark í 12. mínútur á þessum kafla og eyjamenn náðu forustunni og héldu henni allt til enda. ÍBV náði mest sex marka forskoti í síðari hálfleik en slökuðu aðeins á undir lok leiksins og unnu að lokum góðan tveggja marka sigur, 26-28.
Nú er ljóst að ÍBV endar í 7. sæti Olísdeildarinnar og mæta Aftureldingu í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratittilinn. Einvígið milli liðanna hefst næstkomandi þriðjudag.
Mörk ÍBV skoruðu þeir: Einar Sverrisson 9, Theodór Sigurbjörnsson 8, Bergvin Haraldsson 3, Grétar �?ór Eyþórsson 3, Andri Heimir Friðriksson 2, Agnar Smári Jónsson 1, Guðni Ingvarsson 1 og Hákon Daði Styrmisson 1

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.