Íhuga næstu skref eftir makríldóm
vsv_2016-6.jpg
Vinnslustöðin. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Landsréttur dæmdi í gær ríkið til að greiða Vinnslustöðinni og Hugin ehf. skaðabætur vegna tjóns sem félögin urðu fyrir vegna ólögmætra skerðinga við úthlutun makrílkvóta á árunum 2011-2018.  Hæstiréttur hafði með dómum á árinu 2018 fallist á kröfur fyrirtækjanna um viðurkenningu á bótaskyldu vegna þessara lögbrota, en nú var tekist á um fjárhæð skaðabóta.

Vinnslu­stöðinni voru dæmd­ar um 515 millj­ón­ir kr. í bæt­ur auk vaxta og drátt­ar­vaxta í héraðsdómi í fyrra en Lands­rétt­ur lækkaði bæt­urn­ar niður í 269,5 millj­ón­ir. Í dómi Landsréttar er kveðið á um að kröfur vegna áranna 2011 og 2012 væru fyrndar. Af þeim sökum eru bætur til Vinnslustöðvarinnar lækkaðar og verða 269,5 milljónir króna í stað 515,2 millljóna. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Hugins er hins vegar staðfestur af Landsrétti og nema bætur til þess fyrirtækis 467 milljónum.

Fram kemur í tilkynningu á vef Vinnslustöðvarinnar í dag að á þessu stigi sé verið að greina forsendur dóms Landsréttar um lækkun bótafjárhæða til Vinnslustöðvarinnar.  Að lokinni þeirri greiningu verður ákvörðun um framhald málsins tekin.

Nýjustu fréttir

Boranir hefjast í apríl
Fjölbreytt efni í nýju tölublaði Eyjafrétta
Opið hús og kertalýsing – myndir
Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.