KFS vill stuðninginn með norður
Mynd: KFS

Laugardaginn 20. ágúst næstkomandi kl. 14:00 á KFS leik við Dalvík/Reyni á útivelli. Nú eru ekki nema 6 umferðir eftir af mótinu svo enn getur allt gerst í toppbaráttunni.

Fimm stig skilja að liðin tvö, en með sigri gæti KFS minnkað muninn í tvö stig. Á toppnum eru þessi lið jöfn sem stendur: Dalvík/Reynir, KFG og Sindri.

KFS hvetur alla stuðningsmenn til að koma á leikinn og hafa sett saman pakkaferð, flug og rúta á leikinn. Flogið verður frá Vestmannaeyjum kl. 10:30 og til baka frá Akureyri kl. 17:30. Rúta mun svo ferja hópinn frá Akureyri til Dalvíkur og til baka. Þeir stuðningsmenn sem vilja geta fengið lánaða búninga til að vera í á leiknum.

Við komu til Eyja kl. 18:30 verður frítt á pizzahlaðborð hjá 900 Grill í boði Begga og skemmtileg tilboð á barnum.

Allar nánari upplýsingar á KFS fan club síðunni á facebook. 

Saga KFS 

Knattspyrnufélagið Framherjar-Smástund, eða KFS eins og það er nefnt, var stofnað 7. september árið 1997 við sameiningu tveggja 3. deildar félaga hér í Vestmannaeyjum, Íþróttafélagsins Framherja og Knattspyrnufélagsins Smástundar. KFS verður því 25 ára eftir nokkrar vikur.

Það má segja að það hafi verið full þörf á að halda úti liði í neðri deildum hér í Vestmannaeyjum. Hér eru margir sem hafa gaman að spila fótbolta en treysta sér ekki að einhverjum sökum til að æfa með meistaraflokki ÍBV. Á einu tímabili er félagið að nota u.þ.b. 35-40 leikmenn sem sýnir vel þörfina fyrir að halda úti svona félagi.

Nýjustu fréttir

Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör
Áskorun til Vestmannaeyinga 
Skipar sjö manna fagráð
Skráning stendur yfir í Lífshlaupið
Foreldrar Elliða stolt á leið til Danmerkur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.