Landsbankanum vel tekið og samkeppnin kemur öllum til góða
Starfsfólk Landsbankans. Mynd Óskar Pétur

„Það má segja að Landsbankinn hafi dreift starfseminni út í útibúanetið. Þegar við mætum til vinnu erum við ekki bara að vinna fyrir Vestmannaeyjar heldur allt landið. Við göngum í mál hvort sem þau eru á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Reykjavík eða hvar sem er. Þegar t.d. Björn á Egilsstöðum fer í greiðslumat og sækir um íbúðalán getur hann lent inni á borði hjá okkur hér í Eyjum. Við tökum þá við og vinnum það alla leið. Sama á við þegar fólk vill endurfjármagna lánin sín,“ segir Jón Óskar Þórhallsson, útibússtjóri Landsbankans í Vestmannaeyjum og lítur á þetta sem mikið byggðamál. „Þetta er umfangsmesta fjarvinnuverkefnið sem gagnast landsbyggðinni sem ég veit um. Landsbankinn hefur haldið dreifðu útibúaneti og tryggt að starfsfólk í útibúunum geti unnið störf sem annars væru unnin miðlægt. Þetta hefur tekist vel og er það sem ég er einna hrifnastur af í starfsemi bankans. Það er ekkert launungamál að okkur hefur fækkað hér í útibúinu, en þar ræður mestu sjálfvirknin og að fólk á síður erindi í útibú en áður. Fækkun stöðugilda á við um  allan bankann.“

Virkur á fasteignamarkaði

Jón Óskar segir Landsbankann mjög virkan í fjármögnun fasteigna í Vestmannaeyjum. „Við höfum verið með hagstæð kjör, erum mjög vel samkeppnishæf sem kom í ljós þegar Landsbankinn og Sparisjóður Vestmannaeyja sameinuðust fyrir tíu árum. Áður voru Íslandsbanki og forverar hans sá stóri á markaðnum í Eyjum og hafði þá samkeppnisforskot. Samkeppnin sem kom með Landsbankanum varð til hagsbóta fyrir alla í Vestmannaeyjum. Ekki síst í fasteignalánum þar sem samkeppnin er hörð. Við bjóðum líka í stór lán hjá stóru fyrirtækjunum og þetta er held ég, eitthvað sem allir fagna en þetta hefur tekið tíma. Við komum til Eyja um svipað leyti og Bónus hóf að keppa við Krónuna. Samkeppni varð bæði á matvöru og á lánamarkaði. Kjarabót fyrir alla Eyjamenn.“ Jón Óskar tekur undir að Landsbankinn sé hluti af mikilli uppsveiflu í Vestmannaeyjum síðustu tíu árin. „Fyrir því eru margar ástæður en við höfum sannarlega verið virkir þátttakendur. Við leggjum áherslu á að veita góða þjónustu og við erum með ánægða viðskiptavini sem vilja vera hjá okkur,“ segir Jón Óskar.

Eyjar skipta miklu máli

Hvernig finnst þér viðhorfið úr höfuðstöðvunum til útibúsins? „Mín upplifun er að það skipti Landsbankann miklu að vera í Vestmannaeyjum. Hann er með útibú í öllum stærri bæjunum og ég held að Vestmannaeyjar hafi vantað inn í það net. Maður finnur að þau eru ánægð með að hafa okkur í þeirri keðju. Finn mikinn stuðning og velvilja og mér finnst að Landsbankinn sé upp með sér að vera hérna í Eyjum.“

Jón Óskar segir að stærstu lánabeiðnir, fari í gegnum höfuðstöðvarnar. „En við sinnum að sjálfsögðu sögðu öllum sem til okkar leita. Við höfum líka góða ráðgjafa um ávöxtun sparifjár en ef um stærri upphæðir er að ræða köllum við til ráðgjafa sem eru tilbúnir að koma og fara yfir málin með fólki og bjóða því eignastýringu. Það er svo mikilvægt að við getum þjónustað alla, stóra og smáa með öflugan bakhjarl. Við vorum t.d. nýlega með fræðslu um netsvik og fræðslu fyrir þá sem hyggja á lífeyristöku og var sá viðburður vel sóttur.“

Heppinn með starfsfólk

Jón Óskar segir viðhorf bæjarbúa til Landsbankans sé mjög jákvætt „Þjónustustigið er mjög gott og við leggjum okkur fram um að sinna öllum vel. Ég vil líka benda á að posum merktum Landsbankanum hefur fjölgað í Eyjum. Færsluhirðingu Landsbankans hefur verið vel tekið hérna. Margir í þjónustu og verslun taka þátt í Aukakrónu-samstarfi og við skorum hátt í fjölda þeirra sem bjóða afslátt í gegnum það vinsæla fríðindakerfi hér í Eyjum.“

Eitthvað að lokum? „Landsbankinn var heppinn og erfði mjög gott fólk frá Sparisjóðnum við samrunann á sínum tíma. Því gekk vel að verða Landsbankafólk og læra að aðlagast nýju gangverki.  Það var mjög krefjandi verkefni, en jákvæðni starfsfólks og dugnaður, lagði grunninn að velgengni bankans í Vestmannaeyjum sl. tíu ár.“

Nýjustu fréttir

Stormurinn varð að lagi
Þuríður Matthíasdóttir hannar einstakt skart  
Óeigingjarnt og öflugt starf í þágu Vestmannaeyja
Vestmannaeyjar í gegnum linsu tímans
Forsetahjónin ánægð með heimsókn til Eyja
Jöfn kynjahlutföll hjá embætti Lögreglustjórans í Eyjum
F​jölluðu um stöðu dómsmáls gegn félaginu
Víglundur Þór Þorsteinsson læknir er látinn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.