Liðsstyrkur til ÍBV
Þorlákur Breki Baxter

Knattspyrnumaðurinn Þorlákur Breki Baxter hefur gengið til liðs við ÍBV á láni frá Stjörnunni en hann kom til Stjörnunnar frá ítalska liðinu Lecce fyrir tímabilið 2024. Frá þessu er greint á heimasíðu ÍBV. Hann kemur til með að leika með ÍBV til loka tímabilsins en hann ólst upp hjá Hetti og skipti yfir í Selfoss þegar hann var 15 ára.

Breki, eins og hann er kallaður, er á 20. aldursári og hefur leikið 65 leiki í deildarkeppni á Íslandi, flesta leikina eða rétt tæpan helming í Lengjudeildinni. Hann á fimm leiki með yngri landsliðum Íslands og hafði Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, þetta um hann að segja.

„Ég hef fylgst vel með framgangi Breka undanfarin ár, bæði með Selfossi og yngri landsliðum Íslands og var því mjög einbeittur á að fá hann til okkar þegar okkur bauðst hann á lán, Breki er áræðinn og beinskettur sóknarmaður með mikinn vilja til þess að bæta sig sem leikmaður.“

Knattspyrnuráð ÍBV býður Breka velkominn til félagsins og hlakkar til samstarfsins, segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

ÍBV kom til baka og vann frábæran sigur gegn Haukum
Íslandsmótið í Boccia hófst í Eyjum í dag
Hvar er grafskipið? Hvar eru upplýsingarnar?
„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.