Líf og fjör á barnamenningarháíð
Skólasveitin voru meðal þeirra sem fram komu.

 

Það var sannkallað líf og fjör á Stakkó í morgun þegar leik- og grunnskólar sameinuðust í tilefni Barnamenningarhátíðar.

Barnamenningarhátíð er árleg hátíð sem haldin er víða um land með það að markmiði að efla menningarþátttöku barna og gefa þeim tækifæri til að njóta og skapa listir. Á hátíðinni fá börn að kynnast fjölbreyttum menningarformum, taka þátt í skapandi starfi og sýna eigin verk.

Fjölbreytt skemmtiatriði voru á dagskrá og létu gestir ekki sitt eftir liggja í að taka þátt í stemningunni. Meðal þeirra sem fram komu voru Páll Óskar ásamt Skólasveitinni, Þuríði Andreu, Brasskvintett, og Silla sem öll lögðu sitt af mörkum til að gera daginn eftirminnilegan.

Kynnar viðburðarins voru Eygló Rós og Tinna Mjöll úr FÍV sem stýrðu dagskránni.

Halldór B. var á staðnum og fangaði stemninguna.

 

Nýjustu fréttir

Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.