Meira að segja vallarklukkan gafst upp
�?að gengur hvorki né rekur hjá karlaliði ÍBV í fótbolta í upphafi móts. Meira að segja vallarklukkan á Hásteinsvelli gafst upp í tapleiknum í kvöld gegn Víkingum en lokatölur urðu 1:2 Víkingum í vil. Baráttuandinn sem hefur einkennt ÍBV liðið undanfarna áratugi, virðist vera víðs fjarri í ár. Liðið leikur í raun verr en það gerði í undirbúningsleikjunum sem er verulegt áhyggjuefni. �?að er í raun og veru ekkert jákvætt sem hægt er að taka út úr þessum leik, nema kannski frammistaða Dean Martin, sem var besti leikmaður ÍBV í kvöld. �?að er svo aftur spurning hvort sú staðreynd að leikmaður á fimmtugsaldri sé bestur, sé jákvæð fyrir liðið eða neikvæð.
Eyjamenn áttu alls tvö skot að marki í leiknum gegn Víkingum. Tvö skot í 90 mínútur og annað þeirra rataði á rammann, vítaspyrna Víðis �?orvarðarsonar. �?essi tölfræði segir meira en þúsund orð. Sóknarleikur liðsins var enginn í fyrri hálfleik, örlítið skárri í þeim síðari en þó ekki nærri nógu markviss. Varnarleikur liðsins í heild sinni er ekki að virka nógu vel og miðjan virðist alveg týnd. Sigur Víkinga er fyllilega verðskuldaður enda voru þeir einfaldlega betri.
Staðan í hálfleik var 0:0 en Víkingar komust yfir á 55. mínútu þegar Guðjón Orri Sigurjónsson, sem stóð nú í marki ÍBV, varði fast skot Víkinga af löngu færi en náði ekki að halda boltanum þannig að eftirleikurinn varð auðveldur. Smá vonarneisti kviknaði á 72. mínútu þegar Víðir �?orvarðarson jafnaði metin úr vítaspyrnu en segja má að neistinn hafi verið slökktur mínútu síðar þegar Ian Jeffs var réttilega rekinn af velli. Jeffs tæklaði leikmann Víkings aftan frá, á miðjum vellinum þegar í raun og veru var ekkert að gerast. Klaufaleg mistök hjá þessum reynda og góða leikmanni og það á þessum tímapunkti í leiknum.
En eftir rauða spjaldið kom smá kraftur í leikmenn ÍBV. Stig hefði verið gott en tíu mínútum fyrir leikslok mistókst leikmönnum ÍBV að koma boltanum út úr eigin vítateig, þannig að boltinn féll fyrir varamanninn Aron Elís �?rándarson hjá Víkingi sem skoraði sigurmarkið af stuttu færi. Lokatölur 1:2 og ÍBV hefur nú aðeins eitt stig eftir fyrstu fimm leikina. Og það er ekki bara að uppskeran í stigum talið sé rýr, spilamennska liðsins, fas leikmanna inni á vellinum og baráttuleysið er eitthvað sem þarfnast verulegra úrbóta, og ekki seinna en strax. �?ótt mótið sé aðeins nýhafið, er ÍBV með bakið upp að vegg, sem er alls ekki gott. Liðið er á botni deildarinnar en nú er það í höndum leikmanna að spyrna við fótum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.