Ég er mikil Eyjapeyi, og elska Vestmannaeyjar. �?að sem er frábært við að búa í þessu samfélagi er hvað það er stutt í allt sem ég þarf í daglegu amstri. Tíminn minn nýtist vel yfir daginn. Hérna er allt mjo�?g vinalegt, þú þekkir flesta og þjónustan er oft mjo�?g góð og persónuleg. Náttúran okkar er einsto�?k, að labba út á golfvo�?ll á sumrin og spila 18 holur eru forréttindi. Við eigum frábær íþróttalið og fólk sem hægt er að fylgjast með og styðja. �?að getur verið slæmt að þurfa sækja þjónustu upp á land sem er ekki í boði í Eyjum. �?að er dýrt og tímafrekt að ferðast hérna á milli. �?jóðvegurinn okkar er ekki boðlegur. Mér þykir að fólk ætti að virða betur skoðanir hvers annars. Við getum gert mun betur í mo�?rgu og þess vegna þarf að hlusta á meira en eina hlið málanna. Allir hafa rétt á að koma fram sinni skoðun. Ég sé miklu fleiri kosti en galla við að búa í Eyjum og vonandi sjáum við fram á bjarta framtíð í bæjar- félaginu okkar.
Í síðasta tölublaði Eyjafrétta var rætt við yngri kynslóðina um bæjarmálin í Eyjum. Hægt er að lesa viðtalið við �?laf Björgvin Jóhannesson í heild sinni ásamt skoðunum annarra ungra Eyjamanna um hin ýmsu bæjarmál í nýjasta blaðinu. Ef þú ert ekki áskrifandi nú þegar, er hægt að gerast áskrifandi
hér.