Fimleikar
Verðlagseftirlitið bar saman gjaldskrá fyrir 6 til 8 ára börn sem æfa tvær klukkustundir á viku og fyrir 8 til 10 ára börn sem æfa 4 klukkustundir í viku en miðað er við æfingagjöld frá hausti og fram að áramótum eða um fjóra mánuði. Í fyrrnefnda hópnum er æfingagjaldið hjá Fimleikafélaginu Rán í Vestmannaeyjum 19.692 kr., sem er þriðja lægsta æfingagjaldið yfir landið. Hins vegar eru ekki í boði 2 klukkustunda æfingar fyrir börnin, heldur 3 klukkustunda og því er æfingagjaldið ódýrast hjá Rán ef miðað er við krónur per klukkustund. Hæstu æfingagjöldin í þessum aldursflokki eru hjá Gerplu, 40.617 og næst hæst hjá Ármanni, 34.900.
Sama er upp á teningnum í eldri hópnum. �?ar er æfingagjaldið hjá Rán 24.840, sem er þriðja lægsta æfingagjaldið hjá þeim félögum sem voru í könnuninni. Í aldursflokknum býður Rán hins vegar upp á 6 klukkustunda æfingar á viku en önnur félög 4 klukkustundir. Rán er því með langódýrustu æfingagjöldin ef miðað er við krónur per klukkustund. Hæstu æfingagjöldin í þessum aldurflokki eru hjá Gerplu, 54.579 og næst hæst hjá Fimleikafélaginu Björk, 47.000 kr.
Handbolti
Verðlagseftirlitið tók saman gjaldskrá fyrir 4., 6. og 8. flokk í handbolta fyrir allan veturinn 2013-2014. Ekki er tekið tillit til hvað félögin bjóða upp á margar æfingar í viku en samkvæmt tilkynningu frá ASÍ er ekki mikill munur á fjölda æfinga á milli félaga. Hjá 8. flokki eru 2-3 æfingar í viku, um 3 æfingar í viku hjá 6. flokki og 4-6 æfingar í viku hjá 4. flokki, auk þrekæfinga hjá sumum félögum.
Hjá ÍBV er árgjald fyrir barn sem æfir handbolta og fótbolta 55.000 kr bæði í 4. og 6. flokki en 29.500 kr í 8. flokki. Ef æfingagjaldinu er skipt í tvennt milli fótbolta og handbolta er gjaldið fyrir handboltann eingöngu 27.500 kr í eldri flokkunum tveimur en 14.750 kr. í 8. flokki. Samkvæmt því er langódýrast að senda börn á handboltaæfingar en næst ódýrasta gjaldið í 8. flokki er 24.000 kr. hjá ÍR en hæsta æfingagjaldið er hjá Gróttu og Haukum, 45.000 kr. fyrir veturinn.
Í 6. flokki er aðeins eitt félag sem býður upp á ódýrari æfingagjöld en ÍBV-íþróttafélag en það er Selfoss. �?ar kostar veturinn 27.000 kr. Hæsta æfingagjaldið í 6. flokki er hjá ÍR, 59.000 kr.
Í 4. flokki kemst ekkert félag með tærnar þar sem ÍBV-íþróttafélag er með hælana ef æfingagjaldi félagsins er skipt til helminga. Næst ódýrasta æfingagjaldið er hjá Selfossi, KA og �?ór Akureyri, 45.000 kr. Dýrast er fyrir börn að æfa hjá Val í þessum aldursflokki eða 73.200 kr. fyrir veturinn.
Hér að ofan hefur verið miðað við að æfingagjaldi barna hjá ÍBV-íþróttafélagi sé skipt í tvennt. Sá kostur stendur foreldrum ekki til boða, greiða verður fullt gjald þótt barn æfi aðeins handbolta. Engu að síður stendur félagið vel gagnvart öðrum félögum. Í 8. flokki eru t.d. aðeins fjögur félög með lægri æfingagjöld en ÍBV-íþróttafélag. Í 6. flokki er staðan hins vegar öllu verri en aðeins tvö félög eru með hærri æfingagjöld í aldursflokknum, ÍR og Valur og Fjölnir er með sömu krónutölu. Í 4. flokki færist ÍBV-íþróttafélag svo aftur niður í lægri hópinn en aðeins þrjú félög bjóða lægri æfingagjöld en ÍBV, �?ór, KA og Selfoss, og eitt er með jafn hátt æfingagjald, Fram.
Almennir fimleikar drengja/stúlkna haustönn 2013 | 6-8 ára | 8-10 ára |
2 klst | 4 klst | |
Íþróttafélagið Gerpla | 40.617 | 54.579 |
Umf. Stjarnan | 34.000 | 47.000 |
Fimleikafélagið Björk | 31.000 | 45.700 |
Glímufélagið Ármann | 34.900 | 46.100 |
Íþróttafélagið Grótta *3 | 30.000 | 35.600 |
Íþróttafélagið Fylkir | 28.500 | 37.000 |
Íþróttafélagið Höttur | 26.400 | 37.900 |
Ungmennafélagið Afturelding | 34.000 | 38.000 |
Fimleikafélag Akureyrar *1 | 22.300 | 30.300 |
Ungmennafélagið Fjölnir | 27.000 | 36.200 |
Keflavík íþrótta- og ungmennafélag | 19.900 | 32.400 |
Fimleikafélag Akraness * | 24.000 | 28.000 |
Umf. Selfoss | 18.000 | 22.000 |
Fimleikafélagið Rán *2 | 19.692 | 24.840 |
Íþróttafélagið Hamar | 17.000 | 24.000 |
* ekki boðið upp á 2 klst. heldur 3 klst. og ekki boðið upp á 4 klst. heldur 4,5 klst. | ||
*1 ekki var boðið upp á 4 klst. heldur 4,5 klst. | ||
*2 ekki boðið upp á 2 klst. heldur 3 klst. og ekki boðið upp á 4 klst. heldur 6 klst. | ||
*3 ekki boðið upp á 4 klst. heldur 5 klst. |
Árgjald – Handknattleikur stráka/stúlkna veturinn 2013-2014 | 8. flokkur | 6. flokkur | 4. flokkur |
2-3 æfingar á viku | u.þ.b 3 æfingar á viku | 4-6 æfingar á viku auk þrekæfinga | |
Grótta | 45.000 | 54.000 |
70.000
|
Haukar | 45.000 | 51.000 | 60.000 |
FH | 31.500 | 52.500 | 63.000 |
Afturelding | 44.000 | 50.000 | 60.000 |
Stjarnan | 33.000 | 50.000 | 59.000 |
Fram | 40.000 | 50.000 | 55.000 |
ÍR | 24.000 | 59.000 | 59.000 |
Víkingur | 40.000 | 50.000 | 60.000 |
Fylkir | 34.000 | 46.000 | 66.000 |
HK | 26.000 | 49.000 | 60.000 |
Fjölnir * | 40.000 | 55.000 | 60.000 |
Valur | 42.900 | 58.800 | 73.200 |
Selfoss | 27.000 | 45.000 | |
ÍBV Íþróttafélag *1 | 29.500 | 55.000 | 55.000 |
KA | 27.000 | 37.000 | 45.000 |
�?ór | 27.000 | 35.000 | 45.000 |
Ekki tekið tillit til fjölda æfinga á viku | |||
u.þ.b. 9 mánaða æfingar 4 mán. fyrir jól og 5 mán. eftir jól | |||
* m.v. 8 mánuði | |||
*1 fyrir fótbolta og handbolta |
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst