Öflug menning mótar lífið
- List, menning og tómstundir

Aðsend grein

Zindri Freyr Ragnarsson

Hér á Eyjunni okkar fögru er svo margt gott að finna. Hér er mögnuð náttúra, öflugt tómstundastarf, lifandi lista- og menningarstarf en fyrst og fremst er hér fólk að finna sem vill það besta fyrir bæjarfélagið sitt og er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að efla það blómlega líf sem hér þrífst. ÍBV hefur staðið fyrir frábæru íþróttastarfi fyrir börn og unglinga, sem eflir þrótt þeirra og hug.

Félagsmiðstöðin hefur verið griðarstaður fyrir skólakrakka, þar sem þau geta hist og eflt félagsleg tengsl sín á milli. Tónlistarskólinn hefur stuðlað að (djazz) geggjaðri tónlistarflóru Eyjanna og mótað marga efnilega tónlistarmenn og konur. Safnahúsið og bókasafnið hafa gætt verulega að okkar menningararfi og miðlað þeim fróðleik sem þar er að finna einstaklega vel til bæjarbúa sem og þeirra sem heimsækja okkur Eyjamenn, einnig hafa Safnahús og bókasafnið verið alveg einstaklega dugleg við að mynda tengsl við börn og unglinga með blómlegu og fjölbreyttu starfi. Í Hvíta húsinu hefur verið alveg mögnuð listastarfsemi þar sem fólk allsstaðar að úr samfélaginu getur hist og gefið sköpunargleðinni lausan tauminn  og  Leikfélag Vestmannaeyja hefur verið einstaklega duglegt við að efla menningarstarf hér í Eyjum, fyrir börn, unglinga og fullorðið fólk.

Það er nauðsynlegt fyrir hvert bæjarfélag að hafa fjölbreytt og lifandi lista-, menningar- og tómstundalíf, því góð afþreying og öflug menning skiptir gríðarlega miklu máli í okkar nútíma samfélagi og í raun hefur það alltaf gert það. Með skapandi hug, lyftum við okkur á hærra plan. Nýjar hugmyndir líta dagsins ljós, sköpunargleðin eflir líkama og sál og gefur lífi okkar meira gildi.  Tómstundir hjálpa okkur að efla félagsleg tengsl, róa hug okkar í daglegu amstri og gefa okkur færi á að verða virkari í daglegu lífi. Því þurfum við að huga vel að því lista,  menningar- og tómstundastarfi sem nú er til staðar hér í Vestmannaeyjum.  Öll erum við ólík og ekki finna sig allir í því sama og er því nauðsynlegt að viðhalda og efla fjölbreytt starf á sviði lista, menningar og tómstunda.

Samheldni Eyjamanna er gífurleg og tók ég sérstaklega eftir því er ég sótti viðburð vinnu- og hæfingarstöðvarinnar Heimaey og Visku, en þar fóru Gleðisprengjurnar okkar gersamlega á kostum með sýningu sinni „Á Þjóðhátíð ég fer“. Þegar ég mætti á sýningu var uppselt og fólk streymdi að. Þetta sýnir okkur að við Eyjamenn stöndum saman og erum dugleg við að mæta á lista- og menningarviðburði. Þegar kemur að uppsetningu leiksýninga yfir höfuð, þá átta sig kannski ekki allir á þeirri vinnu sem fer í að setja upp þær leiksýningar, því það er gríðarleg vinna og tími sem fer í það og þátttakendur í sýningunum gera það í sjálfboðavinnu, áhuginn á því að skapa og skemmta er helsti drifkrafturinn.

Menning er dýrmæt, list er dýrmæt og tómstundir nauðsynlegar, hlúum vel að þeim. Eflum samstarf þar á milli og eflum uppbyggingu þeirra. Byggjum upp samfélag þar sem við getum öll notið okkar og fundið okkar stað. Lifum í list, mótumst með menningu og treystum á tómstundir.

 

Zindri Freyr Ragnarsson

Skipar 8. sæti Eyjalistans.

Nýjustu fréttir

Öflug menning mótar lífið
Bókunarkerfi Herjólfs komið aftur í gagnið
Nám í fiskeldisfræði opnar margar dyr  
Nýtt blað Eyjafrétta komið út
Framboðin mætast í Eldheimum í dag
Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu
Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun
Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.