Okkur er ekki sama
Við tökum undir með ÍBV-íþróttafélagi og hvetjum deiluaðila að leysa deiluna. Kennarar og kokkar í leikskólanum Sóla harma þá stöðu sem upp er komin varðandi samgöngur við Vestmannaeyjar. Yfirvinnubann undirmanna á Herjólfi hefur gríðarleg áhrif á samfélagið okkar. Við erum undrandi yfir því að aðilar skulu ekki koma saman og finna lausn. Við höfum skilning á því að bæta þarf kjör undirmanna á Herjólfi en í samningaviðræðum þurfa menn að reyna að mætast og það er aldrei á forsendum annars aðilans en Jónas Garðarsson segir í Eyjafréttum þann 5. mars �??Hættum ekki fyrr en við náum samningum á okkar forsendum�?? og er alveg sama þó þeir (Sjómannafélagið) dingli við þetta fram á sumar. Okkur er ekki sama og við hvetjum þessa aðila til að sýna ábyrgð og tala saman. �?annig finnst lausn.
Kærleikskveðja af leikskólanum Sóla

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.