�?ruggt hjá ÍBV gegn HK
Eyjamenn skutust upp í annað sæti Olísdeildar karla með öruggum sigri á botnliði HK í Eyjum í dag. Lokatölur urðu 25:17 en sigur Eyjamanna var í raun aldrei í hættu, enda var munurinn kominn upp í tíu mörk þegar síðari hálfleikur var rétt tæplega hálfnaður. Eftir það slökuðu leikmenn beggja liða á, enda ljóst hvoru megin sigurinn endaði. �?eir hefðu þó mátt slaka aðeins betur á þeir Agnar Smári Jónsson, leikmaður ÍBV og Davíð Ágústsson, leikmaður HK. Davíð braut illa á Agnari Smára sem svaraði með því að ráðast að Davíð en félagar Agnars náðu þó að stöðva hann áður en í óefni væri komið. Engu að síður var báðum leikmönnum réttilega vísað af leikvelli og spurning hvort Agnar Smári sé kominn í leikbann. Ef svo er, eru það slæm tíðindi fyrir ÍBV enda ekki margar örvhentar skyttur í leikmannahópnum.
Leikmenn beggja liða gerðu sig seka um mikið af mistökum, sérstaklega í byrjun leiks, enda var staðan 0:1 fyrir HK þegar átta mínútur voru búnar af leiknum. En smátt og smátt náðu leikmenn áttum, sérstaklega leikmenn ÍBV sem stóðu vaktina í varnarleiknum og markvarslana var góð. Kolbeinn Arnarson byrjaði í markinu og stóð sig vel en norðmaðurinn Henrik Eidsvaag lék síðustu tíu mínúturnar og sýndi að hann kann eitt og annað fyrir sér í markinu.
�?á var gaman að sjá Róbert Aron Hostert aftur í liði ÍBV en Róbert hefur ekkert spilað í um þrjá mánuði vegna meiðsla. Hann sýndi þó lipra takta í sókninni hjá ÍBV og virðist ekki hafa gleymt því hvernig á að skora mörk. Staðan í hálfleik var 11:7 en Eyjamenn mættu einbeittir til leiks í síðari hálfleik, juku muninn jafnt og þétt og eins og áður sagði, voru þeir komnir með 10 marka mun, 20:10 þegar hálfleikurinn var rétt hálfnaður.
ÍBV er eftir leikinn í öðru sæti deildarinnar, með 14 stig eins og Fram en FH og Valur eru í næstu sætum með 13 stig. Haukar eru hins vegar efstir með 19 stig en ÍBV á leik til góða á þessu lið.
Meðfylgjandi er viðtal við Arnar Pétursson, þjálfara ÍBV.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 5 / 2, Róbert Aron Hostert 5, Sindri Haraldsson 4, Andri Heimir Friðriksson 4, Agnar Smári Jónsson 3, Magnús Stefánsson 3, Grétar Eyþórsson 1.
Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjargarson 11/1, Henrik Eidsvaag 7/1.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.