Samstaða í bæjarstjórn um viðbrögð vegna sölu á Sparisjóði Vm
Mikil óánægja kom fram á bæjarstjórnarfundi í gær um gang mála eftir að ljós kom að Sparisjóður Vestmannaeyja var kominn í þrot. Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti eftirfarandi: 1) Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að falast tafarlaust eftir því að fengið verði hlutlægt mat á verðmæti Sparisjóðs Vestmannaeyja á þeim tímapunkti þegar hann var á þvingaðan máta sameinaður við Landsbankann hf. Við matið skal sérstök áhersla lögð á samanburð á lánasafninu árið 2010 eftir endurreisn sjóðsins og 29. mars 2015 þegar þvingaður samruni við Landsbankann gekk í gegn.
2) Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að kalla tafarlaust eftir lögfræðilegu mati á framgöngu ríkisaðila í tengslum við þau atriði sem rædd eru í minnisblaðinu. Sérstaklega verði þar hugað að því hvort meðalhófs hafi verið gætt.
Elliði Vignisson (sign)
Birna �?órsdóttir (sign)
Margrét Rós Ingólfsdóttir (sign)
Sigursveinn �?órðarson (sign)
Esther Bergsdóttir (sign)
Stefán �?skar Jónasson (sign)
Jóhanna Ýr Jónsdóttir (sign)
Ályktunin var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.