Þriðja deildarmót 6. flokks karla fór fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja um helgina. Selfyssingar sigruðu mótið í flokki A-liða og urðu þar með Íslandsmeistarar. Í flokki B-liða sigraði Fram í deildarmótinu og B-lið Selfoss varð í 2. sæti. B-lið Selfoss hafði hins vegar fleiri stig í heildina og varð því einnig Íslandsmeistari. Fram varð Íslandsmeistari í flokki C-liða og þar urðu Eyjamenn í 2. sæti.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst