Siglt í Þorlákshöfn síðdegis
Herjólfur_2023_ÓPF_DSC_1763
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinnipartinn í dag þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna aðstæðna í höfninni. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 (Áður kl. 17:00). Brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45 (Áður kl. 19:45).

Þeir farþegar sem áttu bókað kl 17:00 og 20:45 færast sjálfkrafa á milli hafna, aðrir þurfa að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. (Ferðir kl. 14:30, 15,45,18:15,19:30,22:00, 23:15 falla niður), segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Þá segir jafnframt að á þessum árstíma sé alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 06:00 í fyrramálið.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.