Skrautlýsing sem eykur öryggi
Ljósið tengt í berginu. Ljósmyndir/aðsendar

Þau eru æði misjöfn verkefnin sem þarf að fást við hjá rafvirkjum bæjarins. Eitt af þeim og klárlega með þeim óvenjulegri er að koma upp ljósum sem lýsir upp bergið í höfninni og innsiglingunni. Í fyrradag fóru þrír þeirra í verkefni í Vatnsrás, sem er vestan megin við Berggang í Heimakletti.

Það voru þeir Steingrímur Svavarsson, Bjarni Geir Pétursson og Bjarki Ingason frá Geisla sem unnu verkið. Að sögn Þórarins Sigurðssonar, eiganda Geisla gekk vinnan vel. „Rafmagnið fékkst úr streng sem liggur í Löngu,” segir hann og bætir við að þetta sé í senn aukið öryggi fyrir sjófarendur og einnig skrautlýsing. Frumkvæði að verkefninu kom frá Dóru Björk Gunnarsdóttur, hafnarstjóra, en til stendur að setja samkonar lýsingu á Ystaklett.

Ekki eru allir Eyjamenn með á hreinu hvar Vatnsrás er og er því til upplýsinga gaman að rýna í örnefnaskrá Gísla Lárussonar. Þar segir m.a. í kaflanum um Heimaklett. Austast í honum að sunnan, fyrir neðan brún er Þuríðarhellir (88), þar neðar og vestar Stórató (89). Þá Vatnsrás (90) við sjó niðri (rennur þar alltaf vatn úr berginu) en upp af Stórutó fyrir ofan brún Víti (91). Þar sunnar Steinketill (92) – hvammur hömrum luktur. Þá er Rauf (93), hryggur því nær ofan frá Háukollar (94) (sem er hæsti tindur Heimakletts) og niður á brún. Í berginu hér niður af er áframhaldandi hryggur í sjó niður, Berggangur (95).

Steingrímur (neðst) fylgist með vinnufélögum sínum ljúka við að tengja ljósið.

Nýjustu fréttir

Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.