Stefna um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gefið út sína fyrstu stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna. Ásmundur Einar Daðason kynnti stefnuna við setningu á ráðstefnunni Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2022 – Tækifæri og áskoranir í nýju landslagi.

Hér er um að ræða ákveðin tímamót í sögu málaflokksins og vegvísir til framtíðar um það sem mennta- og barnamálaráðuneytið hyggst leggja áherslu á til að styðja við félags- og tómstundastarf. Aðgerðir byggðar á stefnunni miða að þvíað tryggja öllum börnum og ungmennum fjölbreytt og framúrskarandi tómstunda- og félagsstarf með virka þátttöku að leiðarljósi.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra:

„Það er verkefni okkar allra að búa öllum börnum og ungmennum aðstæður sem gerir þeim kleift að þroskast og blómstra enda er hagsæld samfélagsins fólgin í því.“

Fram undan eru margvísleg verkefni sem stuðla eiga að framgangi stefnunnar. Ber þar hæst endurskoðun æskulýðslaga og þarfagreining um þjónustuvettvang tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna. Brýnt er að tengja málaflokkinn enn frekar við farsældarlöggjöfina til að styðja við samþættingu þjónustu við börn og ungmenni og nýta þá þekkingu og reynslu sem er til staðar.

Gildistími stefnunnar er til ársins 2030 með aðgerðaáætlun til þriggja ára í senn. Fram undan eru spennandi tímar í málefnum barna og ungmenna.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórnarfundur í beinni
Andri Erlingsson til Kristianstad
Verulegur munur á tilboðum í flóðlýsingu Hásteinsvallar
Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.