Stórbætt þjónusta við flottroll í Vestmannaeyjum
Um síðustu áramót keypti Ísfell ehf nótaverkstæðið Net ehf í Vestmannaeyjum en fyrir rak Ísfell netaverkstæði við Flatir í Vestmannaeyjum. �?essi fyrirtæki hafa núna verið sameinuð og verður starfsemi Ísfells starfrækt á einum stað við Kleifarbryggju inn í Friðarhöfn. �??Við stefnum að því að flytja frá Flötum og starfsemin verði komin undir eitt þak í apríl n.k. á Kleifarbryggju,�?? segir Birkir. �??Í framhaldi af flutningum er á teikniborðinu að stækka núverandi húsnæði um 530 fermetra, sem verður að lokinni stækkun um 2100 fermetrar. Um þessar mundir er unnið að standsetningu á húsnæðinu, endurnýjun á starfsmannaaðstöðu, skrifstofum og kaffistofu og uppsetning á blakkarkerfi fyrir loðnu- og síldarnætur er komin af stað.�?? Einnig er verið að koma upp vel útbúnu víraverkstæði ásamt verslun með vörur til útgerðar. �?á er verið að ljúka við 650 fermetra útisvæði sem notað verður sem geymslusvæði fyrir víra og rockhopper. �??Eftir þessa breytingar verður hægt að taka nætur beint frá skipi inn í hús og það sama má segja um flot- og botntroll,�?? bætir Birkir við. Starfsmenn verða um tíu í Eyjum.
Bætt aðstaða
Hafin er vinna við að setja upp stóra flottrollstromlu ásamt blakkarkerfi sem mun gjörbreyta og gera vinnu við viðhald og framleiðslu á flottrollum í Eyjum þægilega og skilvirka, að sögn Birkis. �??Hingað til hefur vantað góða aðstöðu í Eyjum til flottrollsvinnu og stór hluti viðhaldsvinnu hefur farið fram á bryggjunni. Að lokinni stækkun á húsnæðinu við Kleifarbryggju mun verða til 70 metra flottrollsbraut sem mun gera vinnuna léttari og skilvirkari. �?að segir sig sjálft að hlutirnir vinnast betur í upphituðu húsnæði með góða lýsingu og öll nauðsynleg tól og tæki. �?að er því mikið tilhlökkunarefni fyrir starfsfólk Ísfells að geta boðið uppá bætta þjónustu og heildar lausn fyrir öll veiðarfæri í Vestmannaeyjum,�?? segir Birkir.

Nýjustu fréttir

Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.