Frá fundinum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson
Í kvöld fór fram framboðsfundur í Höllinni. Að fundinum stóðu Vestmannaeyjabær, Eyjafréttir og Tígull. Í pallborði voru fulltrúar allra framboða sem bjóða fram í Suðurkjördæmi. Á annað hundruð Eyjamenn mættu á fundinn og var spurningum beint til frambjóðenda frá skipuleggjendum fundarins og úr sal. Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða.
Ályktun
Fundarmenn gera þá lágmarkskröfu til Alþingis að tryggja það að ríkið muni sjá til þess að grunninnviðir í Vestmannaeyjum verði tryggðir.
Til að tryggja ofangreint þarf ríkið að:
Fjármagna almannavarna-vatnslögn til Vestmannaeyja.
Ljúka við framkvæmd Landeyjahafnar svo hægt sé að sigla í höfnina allt árið.
Byggja upp viðlegukant á Eiðinu norðanverðu. Með slíkri framkvæmd er tryggð svokölluð flóttaleið komi til almannavarnarástands sem kalli á flutning bæjarbúa frá Vestmannaeyjum, líkt og gerðist árið 1973.
Styrkja flug til Eyja að lágmarki 6 mánuði á ári.
Klára að lágmarki fyrsta fasa rannsókna á jarðlögum á Heimaey, strax á næsta ári, líkt og starfshópur á vegum innviðaráðherra um fýsileika jarðgangna milli lands og Eyja leggur til.
Hér að neðan má sjá upptöku og myndasyrpu frá fundinum.